Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Skólaveg 13 Vestmannaeyjum sem er töluvert endurnýjuð neðri hæð ásamt kjallara í tvíbýli. Húsið er byggt úr steini árið 1944 og er eignin 193,1 m2 skv fasteignaskrá. Járn á þaki var endurnýjað árið 2023. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan, má þar nefna vatnslagnir og raflagnir, eldhús, gólfefni, baðherbergi, innihurðar. Útidyrahurð og gluggar á vestur hlið hafa verið endurnýjuð. Ný einangrun í útveggjum, eignin var múruð og máluð að utan í sumar . Eign á frábærum stað nálægt miðbæ Vestmannaeyja.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi, góður skápur
Stofa:Parket á gólfi
Eldhús: Parket á gólfi, falleg Eikar innrétting/hvít háglans sérsmíðuð af Ella P, mikið skápapláss, innbyggður ísskápur og uppvöskunarvél fylgja.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, fibó plötur á veggjum, baðkar, upphengt wc, opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur, einstaklega fallegur bogadregin gluggi
Gluggalaust herbergi: Parket á gólfi
Neðri hæð, stigi niður:
Þvottahús: Steypt gólf
Opið rými: steypt gólf, miklir möguleikar, sér inngangur.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.