Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi, sérafnotareiti og bílastæði við Vallakór 6A, Kópavogi.** Hellulögð, skjólgóð 30 m2 verönd til suð-vesturs
** Bílastæði í lokuðum bílakjallara
** Endaíbúð með sérinngangi norð- austan megin við húsið
** Húsið var byggt 2018 og er klætt að utan með álklæðningu.Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson lgf. S: 775-4000 palli@palssonfasteignasala.is
Þorbirna Mýrdal Löggiltur fasteignasali S: 888-1644 thorbirna@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.iswww.verdmat.isGóð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. Þjóðskrá Íslands er 80,60 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2026 er 70.100.000 kr.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu / stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílastæði.Anddyri er flísalagt með fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu, helluborði, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél, og háfur.
Borðstofa / stofa er með parket á gólfi og í opnu björtu rými með eldhúsi. Útgengt út á rúmgóða, hellulagða
verönd með skjólveggjum til suð-vesturs.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með walk-in sturtu, vegghengt salerni, handklæðaofni, innréttingu með handlaug og skápum.
Þvottahús er flísalagt með vinnuborði með skolvask. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þar er opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla er í sameign skráð 5,6 m2
Bílastæði er sérmerkt í bílakjallara. Rafmagnstengill er við bílastæðið.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign. Myndavélakerfi er í húsinu og í bílakjallara. Sameiginlegur garður með leiksvæði er við húsið. Næg bílastæði á lóð.
Krónan, matvöruverslun er í næsta húsi og mikil nálægð við útivist, íþróttir og þjónustu. Skólar og leikskólar í göngufæri.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.