194,1 fm parhús á einni hæð með bílskúr við Dvergholt 5 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 153,8 fm og bílskúrinn 40,3 fm, samtals 194,1 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Gestasalerni. Rúmgott sjónvarpshol með kamínu. Þrjú barnaherbergi með skáp, öll eins. Hjónaherbergi með fataherbergi. Baðherbergi með baðkari og sturtu. Eldhús með viðarinnréttingu, gashelluborð með viftu yfir, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél. Þvottahús/búr er innaf eldhúsi með útgang á hellulagða verönd. Rúmgóð stofa, borðstofa og sólstofa í björtu alrými með útgang á lóð.
Innangengt er í bílskúrinn úr forstofu. Hiti, rafmagn, vatn og hurðaopnari.
Lóðin er frágengin með hellulagðri verönd og bílaplani, mikill gróður, berjarunnar og rabarbari.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is