Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu
EYJABAKKI 2, 109 Reykjavík. Falleg fjögurra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð. Hún skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi, auk þvottahús/geymslu innan íbúðar. Í kjallara er ein sérgeymsla og sameiginleg geymsla með sérmerktu rými ásamt sameiginlegu þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Húsið er klætt að utan og lóð snyrtileg.
Tilvalin fjölskyldueign!Eignin er skráð alls 105,9 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1969.Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNánari lýsing:Forstofa: Glerveggur á milli forstofu og borðstofu, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt er á góðar suðursvalir.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting með eldavél, borðkrókur, parket a gólfi og flísar á milli efri og neðri skápa.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp sem nær upp í loft, dúkur á gólfi.
Herbergi 1: Dúkur á gólfi, fataskápur á gangi framan við herbergi.
Herbergi 2: Dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, baðkar með sturtu, flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús/geymsla: Inn af eldhúsi - tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi, dúkur á gólfi.
Svalir: Góðar suðursvalir með útgengi frá stofu.
Sérgeymsla: Í kjallara, stærð 4,4 fm. Stærð á sameiginlegri geymslu er 13 fm. og er með sérmerktu rými.
Þurrkherbergi: Sameiginlegt, í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginlegt, í kjallara.
Nýlegar endurbætur:
2025: Fóðrun skólplagna í húsinu.
Gólfteppi á stigagangi hefur verið endurnýjað.
2020: Skipt hefur verið um hurðir í þremur herbergjum og baðherbergi.
Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir og skólar í næsta göngufæri.
Allar nánari upplýsingar veita:Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s.
779-5463 /
anton@trausti.isKristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, s.
867-3040 /
kristjan@trausti.isBóka verðmatwww.trausti.isTrausti á Facebook