ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Grenidalur 10, 260 Reykjanesbær, birt stærð 98.9 fm.
Um er að ræða fallegt endaraðhús á einni hæð við Grenidal í Innri-Njarðvík. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, stofu og elhús í opnu rými og geymslu innan íbúðar. Afgirtur sólpallur.
** Sérinngangur
** Tvö svefnherbergi
** Byggt 2020
** Afgirtur sólpallur
** Aðeins 25 mín frá höfuðborgarsvæðiNánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 866-9954, tölvupóstur haukur@allt.is.Nánari lýsing eignar:
Forstofa hefur flísar á gólfi og góðan forstofuskáp.
Eldhús er opið og bjart með parket á gólfi og fallegri hvítri eldhúsinnréttingu og eyju. Bakarofn, vaskur, helluborð og háfur.
Stofa er björt og opin við eldhús. Útgent á sólpall.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góða hvíta baðinnrétingu, walk in sturtum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru tvö, hafa bæði parket á gólfi og fataskápa.
Geymsla er innaf íbúð.
Umhverfi: Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskóla. Aðeins 25 mín frá höfuðborgarsvæði.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.