Glæsilegt einbýlishús í lokuðum botnlanga í Grafarvogi
Við kynnum til sölu einstaklega vandað og vel hannað einbýlishús að Lyngrima 10. Eignin er samkvæmt skráningu 237,7 fm að stærð, þar af rúmgóður 47,1 fm bílskúr. Húsið stendur innst í rólegum botnlanga í fallegu hverfi Grafarvogs. Garðurinn er skjólgóður og einstaklega vel hirtur – með stórum sólpalli, markísu og heitum potti sem býður upp á notalegar stundir við allar aðstæður. Húsið var teiknað af arkitektinum Kjartani Sveinssyni og innréttingar hannaðar af Eddu Ríkharðsdóttur.
- Glæsilegt einbýlishús í rólegum botnlanga
- 5 herbergi - hjónaherbergi með fataherbergi
- Tvö baðherbergi
- Stór og skjólgóður garður með sólpalli, markísu og heitum potti
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Bryde, Lgf. í síma 660-5532 eða tinna@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsing
Neðri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum skápum
Forstofuherbergi rúmgott með flísum á gólfi og teppaflísum.
Baðherbergi endurnýjað 2019 – flísalagt, gólfhiti, handklæðaofn, sturta, upphengt salerni, innrétting og gluggi
Eldhús endurnýjað 2019 – afar rúmgott með vönduðu helluborði, viftu, tveimur ofnum, góðri innréttingu og borðkrók. Parket á gólfi og gluggar sem hleypa inn fallegri birtu
Þvottahús inn af eldhúsi með flísum á gólfi, skolvaski, vinnuborði og glugga
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi, arni og gluggum á tvo vegu. Tvær hurðir út í garðinn – önnur tvöföld. Útgengt á stóran sólpall með háum skjólveggjum, markísu og heitum potti
Garðurinn er sérlega fallegur og vel hirtur
Efri hæð:
Steyptur, parketlagður stigi á milli hæða
Sjónvarpshol með parketi á gólfi, suðurgluggum og útgengi á svalir til suðvesturs
Baðherbergi með hita í gólfi, flísum á veggjum, hornbaðkari, sturtu, innréttingu með steinborðplötu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gluggi í rýminu
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi og fataherbergi inn af með innréttingum
Þrjú herbergi, öll parketlögð – tvö þeirra með fataskáp
Tvö góð geymslurými í risi
Bílskúr:
47,1 fm, innbyggður og rúmgóður sem býður upp á marga möguleika.
Rafdrifinn hurðaopnari á innkeyrsluhurð
Tvær gönguhurðir og gluggar
Epoxy á gólfum
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er í bílskúrnum
Viðhald og hönnun
Þakið málað 2020
Arkitekt: Kjartan Sveinsson
Innanhússhönnun: Edda Ríkharðsdóttir
Staðsetning
Húsið stendur innst í rólegum botnlanga í fallegu hverfi. Stutt er í skóla, leikskóla, samgöngur og helstu þjónustu.
Þetta er einstaklega vandað og vel við haldið einbýlishús sem sameinar glæsilega hönnun, notagildi og frábæra staðsetningu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.