Mikið endurnýjuð fimm herbergja neðri sérhæð með rúmgóðri aukaíbúð við Byggðarenda 10, ReykjavíkHúsið hefur fengið gott viðhald síðastliðin ár
* Hæðin skiptist í 5 herbergja íbúð og 3ja herbergja íbúð
* Aðalíbúð : 4 rúmgóð svefnherbergi og 2 baðherbergi
* Aukaíbúð : 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi
* Hellulögð verönd og rúmgóður afgirtur garður til suðurs
* Baðherbergin þrjú hafa hlotið endurnýjun á árunum 2018-2021
Endurnýjun hússins sl. ár tiltelur ma. :* 2023 var húsið múrviðgert að utan.
* 2024 voru gluggar yfirfarnir, endurnýjaðir að hluta ásamt útidyrahurð að aukaíbúð, málaðir og kíttað meðfram. Þá var húsið einnig málað að utan og bílaplan endurnýjað.
* 2025 voru frárennslislagnir fóðraðar og endurnýjaðar eftir þörfum samkv. fagaðila
* Þakkantur hefur verið endurnýjaður og þakpappi settur meðfram kanti.
Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 235,00 m2
Eignin er á einu fastanúmeri en skiptist í dag í tvær íbúðir með sérinngangi. Annars vegar 5 herbergja íbúð skráð 134,8 m2 og svo 3ja herbergja íbúð skráð 100,2 m2 samkv. FÍ.
5 herbergja íbúð skiptist í forstofu, hol, borðstofu / stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi og þvottahúsAnddyri er flísalagt með fataskáp.
Hol er með parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með parket á gólfi og opið að hluta með eldhúsi. Fallegur arinn og flísar þar á gólfi. Stórir gluggar.
Eldhús er með L-laga innréttingu og flísum á gólfi, tengi fyrir uppþvottavél og eldavél.
Baðherbergi 1 er flísalagt með upphengdu wc, baðkari með sturtu-aðstöðu, handlaug með skúffum og háum skáp.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataherbergi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og stórum og björtum gluggum.
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og þar fyrir innan er baðherbergi 2.
Baðherbergi 2 er með upphengdu wc, handlaug með skáp og stórum skáp.
Þvottahús er flísalagt með vinnuborði, skolvask, tengjum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt útgengi út í garð.
3ja herbergja íbúð skiptist í stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi.Gengið er inn í stofu / borðstofu með parket á gólfi.
Eldhús er með innréttingu og parket á gólfi, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og bakaraofn.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með góðum gluggum, parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er minna með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Hellulögð stétt er fyrir framan íbúðirnar og gróinn garður meðfram húsinu. Geymsluskúr með nýlegu þaki.
Stór og skjólsæll einkagarður og hellulögð verönd til suðurs.
Eigninni tilheyrir einkastæði á bílaplani.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.