DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 26. feb. 2025

Birkilundur 14

SumarhúsVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
92.6 m2
2 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
646.868 kr./m2
Fasteignamat
54.650.000 kr.
Brunabótamat
66.800.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2334500
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Margir inngangar
Sérlega fallegt nýlegt sumarhús á hornlóð sem samanstendur af 3 húseiningum; sumarhúsi, gestahúsi og áhaldageymslu/bílskúr við Birkilund 14 í Húsafelli. Húsin eru samtals 92,6 m2 auk 22,6 m2 svefnlofts í aðalhúsi, eða samtals 115,2 m2. Að auki eru tæplega 30 m2 óskráðir fermetrar í kjallara áhaldageymslu. 3-4 svefnherbergi auk svefnlofts. Eign hefur fengið sérlega gott viðhald og er góðu ástandi og vel staðsett á þessum vinsæla sumarhúsastað. Stutt er að rölta niður á bæði tjaldsvæði, sundlaug, hótel og veitingastaði. Einnig er golf- og flugvöllur á svæðinu. Laus við kaupsamning. 

Um er að ræða einstaklega glæsilegt sumarhús byggt árið 2018 þar sem búið er að byggja upp frábæra aðstöðu fyrir stórfjölskyldu og/eða starfsmannafélög. Eignin samanstendur af aðalhúsi með svefnlofti, bílskúr með þvottahúsi, aukabaðherbergi, geymslulofti og jafnstórum kjallara með rúmlega fullri lofthæð undir öllum bílskúrnum.

Einnig er stórt gestahús, grillhús, tveimur hellulögðum stórum bílastæðum, niðurgröfnu trampólíni, rúmgóðum sólpöllum með heitum potti, setusvæði í garði með útikamínu og góðum grasbletti, allt rammað inn með birkikjarri á mjög gróinni lóð. Lóðin er hlaðin á pöllum með stuðlabergi. Þetta er einstök eign með heildarfermetrafjölda nálægt 160 fm þótt birt stærð skv. Þjóðskrá Íslands sé ekki nema 45 fm.


Aðalhús (45 fm + 22,6 fm svefnloft):
Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, góðum glugga með opnanlegu fagi og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, góðum glugga með opnanlegu fagi og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuklefa, upphengdu klósetti, vask og skúffum, glugga og handklæðaofni. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Eldhús með fallegri viðar innréttingu, efri og neðri skápum, eldavél með ofni, vask og glugga, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er mjög hlýleg með miklum gluggum sem gefa fallega birtu inn í rýmið, gengið út á verönd með heitum potti úr stofu með fallegu útsýni til suðvesturs, parket á gólfi.
Svefnloft er mjög rúmgott og fallega innréttað með parketi í hólf og gólf ásamt góðum glugga með opnanlegu fagi (flóttaleið).
Verönd er á tvo vegu, vestur og suðurhlið hússins, heitur pottur og hægt að ganga á þrjá vegu niður á lóðina.
Lóðin er með fallega hlöðnu setusvæði með útikamínu, góðu grasbletti og fallega birkigrónu umhverfi.

Bílskúr / Áhaldageymsla (61,8 fm):
Á efri hæð sem er 30,9 fm að gólffleti alls er bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð og steyptum máluðum gólfum. Baðherbergi er innst í bílskúr með sturtuklefa, upphengdu klósetti, vask og spegli, flísar á gólfi. Einnig er þvottahús með flísum á gólfi. Geymsluloft er yfir þvottahúsi og baðherbergi. 
Á neðri hæð, sem er 30,9 fm að gólffleti, er steyptur kjallari með rúmlega fullri lofthæð og er í dag nýtt sem tómstundarými. 

Gestahús (16,7 fm):
Er stór hjónasvíta innréttuð mjög smekklega með setustofu og glugga, parket á gólfi og í lofti. 

Grillhús/geymsla (ca. 12-14 fm):
Á lóðinni er góður geymsluskúr þar sem aðstað með grill er og gott geymslupláss.

Bílastæði eru mörg á lóðinni, bæði er þriggja bíla gestastæði í horni lóðarinnar og svo er öll heimreiðin inn að bílskúr fyrir bíla. Framan við bílskúr og milli hans og aðalhúss er hellulagt með snjóbræðslu undir. Lóðin er 5000 fm leigulóð í landi Húsafells á besta stað, hornlóð, á gamla svæðinu, stutt að rölta niður á bæði tjaldsvæði, sundlaug, hótel og veitingastaði. Einnig er golf- og flugvöllur á svæðinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/10/202132.200.000 kr.48.000.000 kr.92.6 m2518.358 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
30.9 m2
Fasteignanúmer
2334500
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.800.000 kr.
Byggt 2019
16.7 m2
Fasteignanúmer
2334500
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.300.000 kr.

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut 1- 0102
Asparlaut 1- 0102
230 Reykjanesbær
101.8 m2
Fjölbýlishús
312
687 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 9-0204
Jötundalur 9-0204
260 Reykjanesbær
63.9 m2
Fjölbýlishús
211
845 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 6I -0203
Dísardalur 6I -0203
260 Reykjanesbær
63.1 m2
Fjölbýlishús
211
856 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 6M - 0207
Dísardalur 6M - 0207
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin