***Eignin getur verið laus við kaupsamning***Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. kynnir: Glæsilega og vel skipulagða fjögurra herbergja ibúð á sjöttu hæð með rúmgóðum bílskúr við Kríuhóla 2 í Reykjavík. Eignin er skráð alls 146 fm að stærð og þar af er bilskúrinn 25,2 fm. Eignin skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Þrjú góð svefnherbergi ásamt þvottahúsi innan íbúðar og bílskúr. Búið er að skipta um eldhúsinnréttingu, tæki og vask. Geymsla í sameign sem er ekki inní fm fjölda eignarinnar. Einstakt útsýni er úr íbúðinni.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Parket á gólfi og góður fataskápur með rennihurðum.
Eldhús: Rúmgóð og falleg hvít innrétting ofni og örbylgju í vinnuhæð sem fylgja með. ATH á myndum er eldri innrétting.
Stofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Innfelld lýsing. Útgengt á yfirbyggðar svalir sem snúa í austur. Parket á gólfi. Nýleg svalahurð.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi, og góður fataskápur.
Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbegi: Flísalagt með baðkari, ágæt innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús: Gott þvottahús innan íbúðar með hillum og plássi fyrir þurrkara og þvottavél. Hægt er að útbúa aukasalerni í þvottahúsinu þar sem stórt og gott sameiginlegt þvottahús er á fyrstu hæð.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr með sjálfvirkri hurðaopnun.
Eignin getur verið laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.