Til leigu 501,5 m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð við Grensásveg 3 í Reykjavík. Bjart og gott húsnæði með glugga á þrjá vegu. Laust strax.
Vel staðsett og björt skrifstofuhæð miðsvæðis í borginni. Eignin er í enda hússins með gluggum í þrjár áttir og góðu útsýni. Hæðinni er í dag skipt í þrjár skrifstofueiningar; 313,5 m², 159,3 m² og 28,7 m² með sameiginlegu móttökurými, tveimur snyrtingum og ræstiaðstöðu, samtals 501,5 m². Auðvelt er að opna á milli og nota hæðina sem eina heild.
Stærsta skrifstofurýmið skiptist í móttöku, opin vinnurými, nokkrar lokaðar skrifstofur, fundarherbergi, setustofu og eldhús með góðri kaffiaðstöðu. Næststærsta rýmið skiptist í opið vinnurými, þrjár lokaðar skrifstofur, fundarherbergi og kaffistofu. Svo er eitt skrifstofuherbergi við anddyri. Sveigjanlegt skipulag er á hæðinni og auðvelt að sameina skrifstofueiningarnar eða breyta innra fyrirkomulagi þar sem burður hússins er í súlum. Dúkur er á gólfi og kerfisloft með innbyggðri lýsingu. Öflugt loftræsikerfi til staðar. Fyrirhugað er að setja upp lyftu í húsinu fljótlega.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.