BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FÍFUMÓA 6, 800 Selfossi. Parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í grónu hverfi á Selfossi. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er timburhús, byggt árið 2004. Eignin skiptist í íbúð 99.6 m² og bílskúr 39.7 m² samtals 1393 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, tvö svefnherbergi (voru áður þrjú), baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing: Anddyri með þreföldum fataskáp.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, þaðan er útgengt út á timburverönd til suðurs.
Eldhús, eldavél, háfur, innbyggður örbylgjuofn, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, Samsung ísskápur getur mögulega fylgt, gluggi, borðkrókur.
Svefnherbergin eru tvö en voru upprunalega þrjú samkvæmt teikningu
(þriðja herbergið var þar sem er í dag borðstofa).
Hjónaherbergi, með fataskápum yfir heilan vegg.
Barnaherbergi án fataskápa.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vask innrétting, baðkar og sturta, gluggi.
Þvottahús er á milli íbúðar og bílsskúrs. Þar er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara undir borði.
Gólfefni: Parket er á stofu, borðstofu, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Fífumói 6-8 er parhús. Húsið er timburhús á einni hæð, járn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Lóð er gróin, bílaplan er stæði fyrir fjórar bifreiðar. Skjólgóð timburverönd er í garði. Þar er einnig geymsluskúr.
Lóðin er 1248,0 m² eignarlóð.Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 227-2017.Stærð: Íbúð 99,6 m². Bílskúr 39,7 m². Samtals 139.3 m²
Brunabótamat: 62.900.000 kr.
Fasteignamat: 73.650.000 kr
Byggingarár: 2004.
Byggingarefni: Timbur.