Glæsilegt 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.Um er að ræða sérlega fallega og vel skipulagða 248,9 fm eign á frábærum stað innarlega í lokuðum botnlanga. Af efri hæð er stórkostlegt útsýni til sjávar og yfir á Álftanes. Húsið er álklætt að utan og því nánast viðhaldsfrítt.
Neðri hæðForstofa: Rúmgóð með fatahengi og parketi á gólfi. Innangengt er í góðan bílskúr.
Gestasalerni: Flísalagt í hólf og gólf, með sturtu og snyrtilegri innréttingu.
Forstofuherbergi: Með góðum skápum og parketi.
Eldhús: Einstaklega rúmgott og glæsilegt með svartri háglansinnréttingu, kvartz borðplötu og vönduðum tækjum úr Pininfarina-línu Gorenje.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi eldhúsi með parketi og útgengi út á sólríkan pall.
Sólpallur: Vandaður, um 90 fm sólpallur til suðaustur ásamt heitum potti. Möguleiki að stækka pallinn um sirka 10 fm.
Hellulagt bílaplan með hita og möguleika á að stækka það fyrir allt að þrjá bíla.
Efri hæðStigi: Steyptur og teppalagður stigi með fallegu stálhandriði.
Baðherbergi: Stórt og flísalagt í hólf og gólf, með bæði baðkari og sturtu.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með sér fataherbergi, parketi á gólfi og útgengi á stórar svalir til suðurs.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með góðum skápum og parketi.
Svefnherbergi III: Mjög stórt herbergi (21 fm) með góðum skápum og parketi.
Sjónvarpsherbergi: Parket á gólfi og útgengi á svalir til vesturs með útsýni á Bessastaði (auðvelt að breyta í svefnherbergi).
Niðurlag: Þetta glæsilega fjölskylduhús stendur á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað með stutt í alla þjónustu
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 / GUNNAR@FASTLIND.IS EÐA HRAFN VALDÍSARSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 8459888 / HRAFN@FASTLIND.IS