Fasteignaleitin
Skráð 16. maí 2024
Deila eign
Deila

Brekkugata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
140.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
746.619 kr./m2
Fasteignamat
95.650.000 kr.
Brunabótamat
78.270.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2019
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2364227
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
7
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Upprunalegt.
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir (suður og norðvestur).
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Parket við forstofu er skemmt og sér eilítið á hurðarkörmum forstofuhurðar og þvottahúshurðar.
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir Brekkugötu 3 í Urriðaholti í Garðabæ. Um 5 herbergja endaíbúð er að ræða á 2. hæð í lyftuhúsi og fylgir stæði í bílageymslu.Tvennar svalir eru á íbúðinni og sést bæði til fjalla og til sjávar. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og veitingastaði. Einnig er afar stutt í náttúruna við Urriðavatn og í Heiðmörk.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, nokkur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 140,2 m2. Að auki er stæði í bílageymslu. 

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !

Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa er inn af snyrtilegri sameign með lyftu. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf sem flæðir um flest rými eignarinnar. Í forstofu er fjórfaldur hvítur fataskápur sem nær upp í loft.
Stofa er með gluggum í tvær áttir, til norðurs og austurs og er útsýni þaðan út á Esjuna um glugga í vínkil. Útgengi er út á 8,1 m2 svalir til norðvesturs.
Borðstofa tengir saman stofu og eldhús. 
Sjónvarpsrými inni í stofu er á teikningum fjórða svefnhergbergið (9,2 m2). Allar lagnir eru til staðar til að útbúa þar herbergi, eins og gert var ráð fyrir í upphafi.
Eldhús er með innréttingu á einum vegg. Neðri skápar eru hvítir og efri ljósbrúnir. Undir efri skápum er innfelld lýsing. Grá borðplata með helluborði og vaski. Vifta yfir helluborði. Sér eining skilur að eldhús og borðstofu. Á þeim vegg er bakaraofn, hillusamstæða og stæði fyrir ísskáp.
Herbergi I er næst forstofu. Rúmgott 13,4 m2 herbergi með þreföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Útgengi er út á 5,2 m2 suðaustur svalir, þar sem sólar nýtur við fram á miðjan dag.
Herbergi II er með tvöföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Gluggi snýr til austurs. Þetta herbergi er jafn stórt herberginu við hliðina, 10,7 m2.
Herbergi III er með tvöföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Gluggi snýr til austurs.
Baðherbergi er með ljósgráum gólf- og veggflísum. Stór innrétting á einum vegg, með skúffum og skápum. Grá borðplata. Hvítur handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta.
Þvottahús er innan íbúðar. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur, skápur og hillur.
Geymsla er sér og á góðum stað í sameign á 1. hæð.
Hjóla- og vagnageymsla er innandyra í sameign á 1. hæð. Einnig í hluta bílageymslu.
Bílageymsla er með sérmerktum stæðum, alls 19 stæðum. Hún er mjög snyrtileg og er hluti hennar afgirtur fyrir hjól og vagna. Ekið er inn í bílageymslu frá Dyngjugötu. Bílastæði eru ofan á þaki bílageymslu og er ekið að þeim um Brekkugötu. Úti á lóð eru 31 bílastæði.
Garður er gróinn. Falleg hönnun með steinhleðslum, beðum fyrir fjölærar plöntur, grassvæði og hellulagðar stéttar.
Sorpgeymsla er þægilega staðsett úti við inngang í bílageymslu.
Svalir íbúðar eru með rafmagnstenglum og handrið eru með glervegg.
Húsið er byggt úr steinsteypu og er einangrað að utan. Brekkugata 3 er með 11 íbúðum, áfast Brekkugötu 1 með 14 íbúðum. Nánar í eignaskiptayfirlýsingu.

Heimasíða Urriðaholts
Urriðaholtsskóli
Leikskólinn Urriðaból

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/01/202163.800.000 kr.66.000.000 kr.140.5 m2469.750 kr.
19/03/202027.250.000 kr.317.200.000 kr.617.9 m2513.351 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2364227
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.270.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lyngás 1B
Bílastæði
Skoða eignina Lyngás 1B
Lyngás 1B
210 Garðabær
131.4 m2
Fjölbýlishús
513
783 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 29
Bílastæði
Opið hús:22. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Holtsvegur 29
Holtsvegur 29
210 Garðabær
153.9 m2
Fjölbýlishús
514
747 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2A
Opið hús:22. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Garðatorg 2A
Garðatorg 2A
210 Garðabær
107.2 m2
Fjölbýlishús
312
1072 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Maltakur 7
Bílastæði
Skoða eignina Maltakur 7
Maltakur 7
210 Garðabær
116.2 m2
Fjölbýlishús
211
856 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache