Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Glæsilegt, vandað, rúmgott og bjart steinsteypt sex herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Steypt suðvestur sólverönd. Arin í stofu. Tvö baðherbergi. Hiti í öllum gólfum. Hátt er til lofts í stofu og eldhúsi. Sérlega gott fjölskylduhús.
Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðarhlutinn 186,1 fm og bílskúrinn 43,9 fm. Samtals er eignin því skráð 230 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með flísum á gólfi, gluggum á þrjá vegu, arin og hurð út á rúmgóða steypta sólverönd. Opið eldhús með flísum á gólfi, glæsilegri innréttingu, tveimur bakarofnum, uppþvottavél, ísskáp, gluggum á tvo vegu og háf sem blæs út. Svefnherbergisgangur með flísum á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, baðkari, upphengdu salerni, glugga og hurð út. Fjögur rúmgóð herbergi með fllísum á gólfi, tvö með klæðaskápum. Hjónaherbergi með flísum á gólfi og skápum. Þvottahús / baðherbergi með flísum á gólfi, baðherbergisinnréttingu, þvottahússinnréttingu, upphengdu salerni, sturtu og hurð út.
Bílskúrinn er rúmgóður með gluggum og rafmagnsopnara á innkeyrsluhurð. Innst í bílskúr er gert ráð fyrir geymslu.
Hiti er í öllum gólfum. Varmaskiptir á neysluvatni.
Húsið verður afhent með steinuðum útveggjum.
Lóðin verður þökulögð og bílastæði með mulning.
Gert er ráð fyrir heitum potti og sauna.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.