RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf og Garðari Hólm lgf. kynna glæsilega 4ra herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr við Hlíðarveg 21 í Kópavogi. Eignin er frábærlega staðsett í suðurhlíðum kópavogs og er stutt í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu. Eignin er á jarðhæð með 27,9 fm suðurverönd þar sem er heitur pottur og útgegnt í snyrtilegan garð.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 164,4 fm. þar af bílskúr 32,6 fm.Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Eldhús: Með ljósri innréttingu og viðarborðplötu, flísar milli efri og neðri skápa. Bakarofn í vinnuhæð, gashelluborð og gufugleypir. Innbyggð uppþvottavél og rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Góðir gluggar eru í eldhúsi sem gerir það einstaklega bjart. Rúmgóður borðkrókur. Flísar eru á gólfi og gólfhiti er í eldhúsi.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi. Með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og opnanlegur gluggi. Hiti í gólfi.
Geymsla/Búr: Er einnig inn af eldhúsi með hillum og flísum á gólfi. Hiti í gólfi.
Borðstofa/Stofa: Er samliggjandi opið rými. Mjög rúmgott. Parket á gólfi. Þaðan er útgengt á stóra suðurverönd.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu með handlaug, spegli, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Herbergi II & III: Eru rúmgóð með fataskápum. Parket á gólfi.
Geymsla I: Er innan íbúðar, undir stiga efri hæðar og er hún 6,9 fm.
Geymsla II: Er í kjallara í sameign og er hún 6,8 fm. Einnig er sameiginlegt svæði/lagnarými þar sem geymd eru t.d. hjól.
Verönd: Er þinglýst séreign íbúðar og er hún skráð 27,9 fm. Búið er að setja heitan pott á verönd og snýr hún í suður.
Bílskúr: Er 32,6 fm. Þar eru góðir gluggar.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Jóna lgf. S. 661-2363 eða í gegnum gulla@remax.is
Garðar Hólm lgf. S. 899-8811 eða í gegnum gardar@remax.is