DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 26. sept. 2025

Hringhamar 17 - til leigu

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
58.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fasteignamat
53.550.000 kr.
Brunabótamat
40.400.000 kr.
Mynd af Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
3. hæð af 5
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2529237
Landnúmer
231980
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Guðrún Þórhalla og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna:
Hringhamar 17 í Hamranesinu, Hafnarfirði. Glæsilegar nýjar íbúðir í fallegu og sérlega vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt er af traustum verkataka Mótx.

Uppl: Hringhamar 17, Íbúð 301: 58,4 fm 2ja herbergja íbúð á 3. hæð. Íbúðin er 54,4 fm ásamt 4,0 fm geymslu.
Íbúð 301: 58,4 fm 2ja herbergja íbúð á 3. hæð. Íbúðin er 54,4 fm ásamt 4,0 fm geymslu.
Næg bílastæði og stutt í fallega náttúru og gönguleiðir. Stutt í leik og grunnskóla sem og frábært íþróttasvæði á Ásvöllum. Afhending íbúðar er í nóvember 2025.
Bókið skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.is.
Hringhamar.is - Heimasíða verkefnisins.


Frekari upplýsingar um eignirnar:
Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.
Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft
Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.
Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu. Stæði í bílageymslu fylgir ekki þessari eign.

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.

MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.
Allar nánari upplýsingar veita:
Guðrún Þórhalla Helgadóttir löggiltur fasteignasali/viðskiptafræðingur í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/09/202653.550.000 kr.57.000.000 kr.58.4 m2976.027 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bæjarhraun 10
Til leigu
Skoða eignina Bæjarhraun 10
Bæjarhraun 10
220 Hafnarfjörður
70 m2
Atvinnuhúsn.
4 þ.kr./m2
245.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7
Til leigu
Skoða eignina Reykjastræti 7
Reykjastræti 7
101 Reykjavík
74.5 m2
Fjölbýlishús
211
Fasteignamat 107.600.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hringhamar 31
Til leigu
Bílastæði
Skoða eignina Hringhamar 31
Hringhamar 31
221 Hafnarfjörður
93.9 m2
Fjölbýlishús
32
Fasteignamat 73.150.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Eyravegur 34B - Íb. 102
Til leigu
Eyravegur 34B - Íb. 102
800 Selfoss
46.4 m2
Fjölbýlishús
211
Fasteignamat 34.550.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin