RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (s.774-1477 eða herabjork@remax.is) kynna: Glæsileg 3-4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum með tvennum svölum í fallegu húsi byggðu 2017 við Mýrargötu 27 í miðborg Reykjavíkur. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. * Vandað hús með aukinni lofthæð að hluta og þreföldu gleri með aukinni hljóðeinangrun.
* Tvennar svalir & fallegur sameiginlegur garður með útisvæði og geymsluskúr.
* Tvö rúmgóð baðherbergi.
* Gólfhiti á allri eigninni.** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis ** Nánar um eign: Eignin er samtals 120,1 m² og samanstendur af andyri & stigagangi, alrými (eldhús, stofa, borðstofa), tveim svefnherbergjum, tveim baðherbergjum og sjónvarspholi. Tvennar suðursvalir. Garður og sameign öll hin snyrtilegasta og vel rekin húsfélög.
** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **Nánari lýsing: 2.hæð Andyri: Gengið inn um sameiginlegan inngang með íbúð jarðhæðar og upp teppalagðan stiga á 2.hæð. Á stigapalli er fatahengi. Góð geymsla/fataskápur með hillum og hengi. Vínilparket á gólfi.
Alrými (eldhús / stofa / borðstofa): Opið og bjart rými með gluggum til suðurs og norðurs og útgengi út á 4,2 m²
svalir sem vísa til suðvesturs út í fallegan bakgarð.
Eldhúsið er nýlega uppgert og með fallegri innréttingu sem er IKEA í grunnin en frontar sérsmíðaðir frá HAF. Gott vinnu- og skápapláss í neðri skúffum/skápum. Spanhelluborð, háfur, ofn í vinnuhæð, undirfelldur vaskur og blöndunartæki með útdraganlegum krana. Borðplata úr DEKTON stein sem flæðir upp á vegginn og innbyggð uppþvottavél.
Stofa & borðstofa er opinn og rúmgóð og frá stofu er útgegnt út á 4,2 m²
svalir
sem vísa í suðvesturátt, inn í bakgarð þar sem nýlega var útbúið falleg útisvæði og geymsluskúr.
Baðherbergi I: Er rúmgott með flísum á gólfi og á veggjum í rúmgóðri sturtu með innfelldum tækjum. Upphengt klósett, vaskaskápur og handklæðaofn.
Þvottahús & geymsla: Er til hliðar við eldhúsi, við stiga upp á 3 hæð. Góð lofthæð og gott pláss fyrir þvottavél / þurrkara ásamt geymslurými. Flísar á gólfi. Auka geymsla er í skúr sem er staðsettur á útisvæði aftan við hús.
3.hæðSjónvarpshol: Gengið upp teppalagðan stiga á 3.hæð og inn í parketlagt rými sem í dag er nýtt sem sjónvarpshol. Þaðan er útgengt út á 11,8 m² suðvestursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgótt og notalegt með góðum fataskápum og parket á gólfi. Fallegt útsýni yfir sjóinn og í átt að Esjunni.
Svefnherbergi: Bjart með góðum síðum suðurglugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi II: Flísar á gólfi og í rúmgóðum sturtuklefa. Upphengt klósett, vaskaskápur og handklæðaofni. Gluggi með opnanlegu fagi.
Mýrarvegur 27 er partur af fallegu 3ja hæða fjölbýlishúsi byggðu 2017 á þessum vinsæla stað í Reykjavík. Húsið er bárujárnsklætt timburhús sem stendur á 178 m² lóð sem að nýverið var tekin í gegn, hellulögð og útbúin fallegur pallur ásamt geymsluskúr og ruslatunnuskýlum.
Um er að ræða vandaða eign á þessum vinsæla stað miðsvæðis í borginni og býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu í næsta nágrenni, stutt frá skólum, miðbæ Reykjavíkur & fjölbreyttum verslunum og veitingastöðum á Grandanum. Í næsta nágrenni er hin vinsæla Vesturbæjarlaug og við strandlengjuna má finna fallegar gönguleiðir.
Hér er um að ræða eign sem hentar vel fyrir litla fjölskyldu, pör og/eða þá sem vilja njóta þæginda og lífsgæða á einum vinsælasta stað borgarinnar.
Eign sem vert er að skoða.Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali í 774-1477 og/ eða á herabjork@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.600 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref.
774-1477 / herabjork@remax.is.