LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu afar rúmgott og mikið endurbætt þriggja hæða parhús með séríbúð í kjallara og bílskúr á eftirsóttum stað í Hlíðunum, Hamrahlíð 29A í Reykjavík. Húsið er teiknað af Guðmundi Kr. Kristinssyni arkitekt, sem hannaði fjölmargar vandaðar byggingar á sínum tíma. Húsið er einkar bjart og vel skipulagt og stendur á gróinni og skjólsælli lóð með verönd til suðurs.
Um er að ræða fjölskylduvæna eign með mikla nýtingarmöguleika, þar á meðal séríbúð í kjallara sem hentar vel til útleigu, fyrir ungmenni eða sem hluti af heimilinu.
Birt stærð eignarinnar er 232 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands en raunstærð hennar er um 277 fm miðað við samþykktar teikningar. Þar af er séríbúð í kjallara 46,2 fm og stakstæður bílskúr 25,9 fm.
Á aðalhæð er rúmgóð forstofa, gestasnyrting, björt stofa og borðstofa með góðu rými til samveru, eldhús og hol. Úr stofurými er útgengt á svalir til suðurs. Á efri hæð eru þrjú til fjögur góð svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, ásamt sameiginlegu þvottahúsi og geymslum.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing, aðalhæð
Forstofa og hol með innbyggðum fataskáp, steinflísar og parket á gólfi.
Gestasalerni með glugga, upphengdu salerni og handlaug, steinflísar á gólfi.
Eldhús, nýlega endurbætt með hvítri innréttingu og steini á borðum, innbyggð uppþvottavél og bakaraofnar í vinnuhæð, flísar á gólfi með gólfhita.
Stofa og borðstofa, bjart opið rými, parket á gólfi, útgengt á suðursvalir.
Sjónvarpsherbergi / svefnherbergi, parket á gólfi.
Nánari lýsing, efri hæð með aukinni lofthæð
Hol með innbyggðum fataskáp
, teppi á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi og innangengt á baðherbergi.
Barnaherbergi I með fataskáp sem fylgir, parket á gólfi (voru áður tvö svefnherbergi).
Barnaherbergi II með fataskáp sem fylgir, parket á gólfi og útgengt á suðursvalir.
Vinnuherbergi, parket á gólfi (hluti af barnaherbergi á teikningum).
Baðherbergi flísalagt með hvítri innréttingu og steini á borði, upphengt salerni, baðkar og sturtu, steinflísar á gólfi.
Nánari lýsing, kjallari (ekki sjáanlegt í skráðum fermetrum hjá Þjóðskrá).Þvottahús með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi og útgengt á baklóð.
Hol og geymslur með hillum, málað og flísalagt gólf.
Nánari lýsing, séríbúð í kjallara - bæði með sérinngangi og innangengtForstofa og hol með fataskáp, flísar og parket á gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu og eldavél, dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga, flísalagt með salerni, handlaug og sturtu.
Bílskúr með vandaðri bílskúrshurð.
Eignin hefur fengið mikið og gott viðhald í gegnum árin, lóð fullfrágengin og skjólsæl. Fyrri eigendur endurnýjuðu meðal annars stóran hluta glugga, neysluvatns- og ofnalagnir að hluta, þak hússins og fóðruðu lagnir auk þess sem niðurföll voru endurnýjuð. Þá voru öll baðherbergi endurnýjuð og þvottahús flísalagt.
Frá því núverandi eigendur festu kaup á eigninni árið 2014 hefur húsið jafnframt notið markvissrar umhirðu og viðhalds. Strax í upphafi var parket lagt á herbergi á efri hæð og í kjallaraíbúð, nýjar hurðir settar í hluta kjallaraíbúðar og anddyri hennar flísalagt. Þá var einnig lagt CAT-5 lágspennukerfi í herbergi hússins og rafmagnstafla endurnýjuð.
Á síðustu árum hafa verið gerðar fjölmargar frekari endurbætur, þar á meðal fóðrun á stofnlögn frá húsi að brunni, parket slípað og lakkað, þakrennur og niðurföll endurnýjuð og bílskúrshurð endurnýjuð.
Eldhús var endurnýjað árið 2018 ásamt rafmagni og pípulögnum og settur hiti í eldhúsgólf, auk þess sem hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl var sett upp sama ár. Einnig hafa farið fram múrviðgerðir og viðhald á ytra byrði hússins, þak hreinsað og málað, gler og opnanleg fög í hluta glugga endurnýjuð, fráveitubrunnur í lóð endurnýjaður og lýsing sett upp á bílaplani.
Húsið var málað að utan árið 2021, þar á meðal gluggar, tréverk og steinn, auk þess sem bílskúr og garðveggur voru lagfærðir og málaðir. Svalir og tröppur voru síðar slípaðar og filteraðar. Nýlega hafa einnig verið gerðar frekari lagfæringar í kjallara, þar á meðal flísalagt baðherbergisgólf og frárennslislagnir lagfærðar.
Nánari upplýsingar um framkvæmdir og viðhald eignarinnar má finna í samantekt seljenda.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is - Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.