Byr fasteignasala kynnir í einkasölu BLÓMVANGUR 2 íb. 002, 700 Egilsstaðir. Snyrtileg þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli.Stutt í alla almenna þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt fjölbýlishús, byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð, 90,5 m² og geymslu í kjallara, 10,8 m² samtals 101.3 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gangur. Sér geymsla í kjallara.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Nánari lýsing: Forstofa, fataskápur, flísar á gólfi, þaðan liggur gangur að öðrum rýmum.
Gangur liggur innan við forstofu að öðrum rýmum íbúðar.
Eldhús, Brúnás innrétting (vor 2025), helluborð og ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur (getur fylgt).
Stofa og borðstofa saman í alrými, útengt á verönd.
Herbergi I, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi II, fjórfaldur opinn fataskápur frá IKEA.
Baðherbergi, endurnýjað í heild sinni vorið 2025, flísar á gólfi, veggflísar í sturtu og einum vegg, Brúnás innrétting með einum vask og speglaskápur með ljósi.
Upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi. Þvottavél og þurrkari inni á baði í innréttingu með skáp fyrir ofan.
Gólfefni: Parket er á svefnherbergjum, gangi, eldhúsi, borðstofu og í stofu. Flísar eru á anddyri og á baðherbergi.
Íbúðin er upphituð með ofnum. Innihurðar eru allar nýlegar og hvítar að lit.
Í kjallara í sameign,: sér geymsla, 10.8 m² að stærð, hjóla- og vagnageymsla, ásamt sameiginlegri þvottaaðstöðu.
Um er að ræða íbúð sem hefur verið endurnýjuð; eldhús, baðherbergi, parket og innihurðir - framkvæmd um vorið 2025.
Íbúðin er á jarðhæð og stutt frá bílastæði. Björt og vel skipulögð eign sem hentar vel fyrir t.d. fyrstu kaupendur. Blómvangur 2 er steypt fjögurra hæð fjölbýlishús með tveimur utanáliggjandi stigahúsum. Húsið er þrjár hæðir og kjallari.
Tuttugu og þrjár íbúðir eru í húsinu. Þak er flatt hefðbundið viðsnúið með pappa og fargi. Hellulögð stétt er að stigahúsum, malbikuð bílastæði, lóð er gróin.
Lóðin er sameiginleg 2740,2 m² leigulóð í Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 227-8144.Stærð: Íbúð 90,5 m² og geymslu, 10,8 m² samtals 101.3 m².
Brunabótamat: 52.180.000 kr.
Fasteignamat: 39.350.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 47.250.000 kr.
Byggingarár: 2005.
Byggingarefni: Steypt.