DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:28. júní kl 15:15-15:45
Skráð 22. júní 2026

Fáfnisnes 7

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
106.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
102.900.000 kr.
Fermetraverð
968.015 kr./m2
Fasteignamat
95.250.000 kr.
Brunabótamat
67.600.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2029613
Landnúmer
106892
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Lagnir endurnýjaðar á efri hæð, upprunalegt á neðri hæð
Raflagnir
Árið 2020, var skipt um allar innstungur, nýjar rafmagnstöflur settar upp á báðum hæðum og raflagnir endurnýjaðar á efri hæð og inn í bílskúr.
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggar yfirfarnir, þéttir og málaðir að innan og utan árið 2025, gler var endurnýjað í þremur gólfsíðum gluggum á efri hæð ásamt svalahurð árið 2019. Það er komin tími á að endurnýja hluta af gleri, komin móða á milli á nokkrum stöðum. 
Þak
Þakefni endurnýjað árið 2025, þar með talið þakefni, þak- og loftagrind, loftræsting, einangrun, loftaklæðning, raflagnir og loftalýsing.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já, suð - austur svalir með útgengi út í garð
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Mikilvægt er að væntanlegir kaupendur séu upplýst um að rýmið sem tilheyrir innbyggðum bílskúr, þar var útbúinn sturtu- og salernis aðstaða. Ekki hefur fengist samþykki fyrir því og fyrir vikið er einungis heimilt að nýta það rými bæði sem þvottaherbergi og sem tómstundarherbergi.  
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is


Vel skipulagt og mikið endurnýjað 106,3 fm parhús á tveimur hæðum að Fáfnisnesi 7, 102 Reykjavík með innbyggðum bílskúr sem búið er að útbúa sem tómstundar herbergi. Sér stæði fyrir framan fylgir eigninni. 

Á neðri hæð er gengið inn um forstofu/hol með harðparket á gólfi, þar er líka bæði hjónaherbergi með fataskápum og barnaherbergi ásamt innbyggðum bílskúr sem hefur verið útbúinn sem tómstundar herbergi með harðparekt á gólfi. Inn af tómstundar herberginu er flísalagt rými með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum upp meðfram baðkarinu, sturtugler og sturtuaðastaða er í baðkarinu. Hvít baðinnrétting með handlaug og tveimur skúffum. Spegill þar fyrir ofan og salerni þar við hlið. Opnanlegur gluggi er inn á baðherberginu.

Steyptur stigi er á milli hæða með stiga í miðjunni sem hleypir birtu inn, undir hluta af stiganum er smá geymslupláss með skápahurð á.

Efri hæðin er opið og bjart alrými með hátt til lofts, innbyggðri lýsingu og fallegum gluggum á öllum hliðum hússins ásamt harðparketi á gólfi. Alrýmið telur eldhúsi, stofu og borðstofu. Eldhús innrétting er hvít, L-laga innrétting með viðar borðplötu, eldavél, skápa- og skúffupláss. Skolvaskur, uppþvottavél og upphengd kolasíu vifta á vegg. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingunni. Veggur stúkar svo af hluta af sjónvarpsstofu, stofan er með sama harðparketið á gólfi. Frá alrými efri hæðar og sjónarpsstofu er útgengi út á timbursvalir sem snúa í suð- austur, timburstigi þaðan niður í sér garð eignarinnar. 

Eignin er skráð 106.3 fm að meðtöldum 18.8 fm bílskúr. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 202-9613 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Húsið hefur fengið gott viðhald, en skv. seljanda hefur eftirfarandi atrriði verið endurnýjuð eða lagfærð.
Árið 2019 var gler var endurnýjað í þremur gólfsíðum gluggum á efri hæð og í svalahurð.
Árið 2020  var skipt um allar innstungur, settar upp nýjar rafmagnstöflur á báðum hæðum og raflagnir endurnýjaðar á efri hæð og í bílskúr.
-  var sett nýtt harðparket á báðar hæðir
-  var bílskúr breytt í tómstundarherbergi með þvottahús inn af. 
-  var eldhús fært. Vatnslagnir endurnýjaðar og sett ný AEG eldavél og vifta.
Árið 2023 var hitakerfi yfirfarið og lagfært eftir þörfum. Varmadæla endurnýjuð og ofnar endurnýjaðir að hluta.
- var nýtt salerni sett upp á baðherbergi.
Árið 2025 var þakefni endurnýjað, þar með talið þakefni, þak- og loftagrind, loftræsting, einangrun, loftaklæðning, raflagnir og loftalýsing.
-  voru sprungur og skemmdir á innri og ytri veggjum lagfærðar og eignin máluð að innan sem utan.
- voru gluggarkarmar yfirfarnir, þéttir og málaðir að innan og utan en það er komin tími á að endurnýja hluta af gleri, komin móða á milli á nokkrum stöðum. 
Árið 2026 var nýtt teppi lagt á stiga milli hæða, eldhúsinnrétting endurnýjuð að hluta og bílskúrshurðar karmur þéttur.

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/12/201638.800.000 kr.48.000.000 kr.106.3 m2451.552 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 44 - íbúð 107
Stefnisvogur 44 - íbúð 107
104 Reykjavík
95.6 m2
Fjölbýlishús
413
888 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 38 - Íbúð 316
Stefnisvogur 38 - Íbúð 316
104 Reykjavík
93.2 m2
Fjölbýlishús
413
922 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 38
Skoða eignina Stefnisvogur 38
Stefnisvogur 38
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
413
904 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Völuskarð 12
Bílskúr
Opið hús:23. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Völuskarð 12
Völuskarð 12
221 Hafnarfjörður
172.9 m2
Parhús
524
787 þ.kr./m2
136.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin