Fasteignaleitin
Skráð 8. feb. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Benijofar

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
111 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
55.800.000 kr.
Fermetraverð
502.703 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
100080225
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur

 SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *GOTT VERÐ*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  á tveimur hæðum með lokuðum garði, verönd út frá stofu og einkasundlaug í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Stórar svalir og auk þess möguleiki á 25 fm. þakverönd gegn aukagjaldi.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Tvö svefnherbergi og  baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á svalir.
Möguleiki á þaksvölum gegn 12.000 evrum aukagjaldi.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu.
Frágengin garður með einkasundlaug.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Aðeins örfá hús í boði.
Verð frá 385.000 evrum (ISK55.800.000)  gengi 1Evra=145.

Á sama stað eru líka einbýlishús með fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Verð frá 585.000 Evrum (ISK70.300.000).
Ofan á verðið bætist 10% skattur og ca. 3% kostn. vegna kaupa,

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.

Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, einkasundlaug, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa
Spánn - Costa Blanca
139 m2
Parhús
423
411 þ.kr./m2
57.100.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Vistabella einbýli
Sumareignir Vistabella einbýli
Spánn - Costa Blanca
106 m2
Einbýlishús
423
508 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Manga Resort
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - La Manga Resort
Spánn - Costa Blanca
143 m2
Fjölbýlishús
322
390 þ.kr./m2
55.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
Spánn - Costa Blanca
107 m2
Einbýlishús
423
541 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin