EIGNAVER 460 6060
Elísabetarhagi 2 íbúð 206
Glæsileg nýleg þriggja herbergja endaíbúð á annari hæð í vönduðu fjölbýli á góðum stað í Hagahverfi. Íbúðin er samtals 85,9 fm. ásamt stæði í bílakjallara. Íbúðin er 3ja herbergja og samanstendur af; forstofu, baðherbergi þar sem er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu, eldhúsi, stofu, gangi, hjónaherbergi og sjónvarpsherbergi. íbúðinni fylgir geymsla (8,1 fm) í kjallara og verönd (7,6 fm).
Innréttingar og skápar: Innréttingar eru í eldhúsi og baðherbergi/þvottahúsi frá danska framleiðandanum HTH.
Skápar eru í forstofu og hjónaherbergi. Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti. Harðplast er á borðplötum.
Eldhús: Glæsileg eldhúsinnrétting með eyju, parket á gólfi. Keramik helluborð og háfur frá AEG.
Baðherbergi: Veggir á baðherbergi/þvottahúsi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir.Glerhurðir eru við sturtu.
Hurðir: Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar.
Gólf í íbúðum: Gólfplata er steypt þar sem einangrun og hitalögn er lögð ofaná áður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða. Harðparket er á gólfum íbúða, flísar eru á gólfum baðherbergis/þvottahúss og forstofu.
Annað:
- Tengill fyrir rafmagnsbíla er við stæði í bílgeymslu.
- Fallegar innréttinga og gólfefni.
Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is