Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu íbúðir við Lindarbrún 2, 810 Hveragerði.
Glæsilegar íbúðir í góðum tengslum við náttúru og umhverfi með einstakan þjónustusamning við Heilsustofnun.
Íbúðirnar tilheyra heilsusamfélagi NLFÍ en um er að ræða fyrstu 18 íbúðirnar af 84 sjálfbærnisvottuðum íbúðum.
Vel skipulagðar og vandaðar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir með aukinni lofthæð og sér loftskiptikerfi.
Stærð íbúða er frá 88,6m² til 176,4m².
Aðgengi að lyftum fyrir allar íbúðir.
Sér stæði í bílakjallara fylgir hverri íbúð, með möguleika á uppsetningu á hleðslustöð.
Stórar geymslur í kjallara, með loftskiptibúnaði, fylgja hverri íbúð.
Íbúðirnar og umhverfi þeirra er sjálfbærnivottað með LEED vottunarkerfinu.
Allar íbúðir eru með gólfsíðum gluggum sem hámarkar birtu og útsýni.
Húsin eru klædd með lerki sem gefur byggðinni hlýlegt yfirbragð og auk þess er timbur eitt umhverfisvænasta byggingarefni sem völ er á.
Lindarbrún 2 eru fjögur fjölbýsihús ásamt bílageymslu neðanjarðar. Á lóðinni eru 18 íbúðir. Arkitektar eru Nordic office of architecture ehf, verkfræðihönnun Efla hf og byggingaraðili Þingvangur ehf.
Þjónustusamningur er á milli Heilsustofnun NLFÍ og Lindarbrúnar.
Í honum felst m.a:
* aðgangur að baðhúsi Heilsustofnunnar
* afsláttur á mat
* hirðing lóðar og næturvarsla á svæðinu
* aðgangur að tækjasal, bókasafni, innra starfi og fræðslu
* skipulagðar gönguferðir. Ýmislegt annað er innifalið sem lesa má betur um í þjónustusamningi þessum.
Eignin er 134,2m² að stærð og skiptist eftirfarandi:
Forstofa, stofa/eldhús, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi og svalir. Þá fylgir íbúðinni 17,2m² geymsla og sérstæði í bílakjallara hússins.
Svalirnar eru 10m², yfirbyggðar og samþykkt hefur verið svalalokun.
Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er stór fataskápur.
Þvottahús: er við forstofuganginn. Þar er innrétting með skápum og skolvaski. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Alrými: eldhús og stofa eru saman í opnu, rúmlega 55m² alrými.
Eldhús: eldhúsinnréttingar eru spónlögð hnota, sérsmíðaðar, framleiddar og uppsettar af Voké III.
Efri skápar eru hvítir og neðri dökk hnota. Borðplata er quartzsteinn,Noble Ivory White. Vaskur og blöndunartæki eru svört sem og höldur á neðri skápum.
Innbyggður ísskápur með frysti, bakarofn, uppþvottavél og vifta. Stór eldhúseyja með helluborði.
Frá stofu er útgengt á 9,6m² svalir. Fyrir liggur samþykki um svalalokun.
Gestasalerni: þar er upphengt wc, handklæðaofn og innrétting með handlaug.
Svefnherbergi: með sérsmíðuðum fataskápum.
Hjónaherbergi: er stórt og rúmgott. Inn af hjónaherbergi er 4m² fataherbergi og baðherbergi.
Fataherbergi: er inn af hjónaherbergi. Þar eru sérsmíðaðir fataskápar sem ná upp í loft.
Baðherbergi: er inn af hjónaherbergi. Þar er vönduð innrétting með skápum og handlaug, upphengt wc, handklæðaofn og "walk-in" sturta.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elvar Guðjónsson, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 895 4000 eða tölvupóstur elvar@valborgfs.is.
Almennt:
Eldhúsinnréttingar eru spónlögð hnota, sérsmíðaðar, framleiddar og uppsettar af Voké III. Eldhús og fataskápar ná upp í loft. Borðplata er quartzsteinn,Noble Ivory White. Einnig er klætt með sama efni á milli efri og neðri skápa. Vaskur og blöndunartæki eru svört. Í eldhsinnréttingum er innbyggður ísskápur (kælir og frystir sambyggður), ofn , uppþvottavél, helluborð og vifta. Eldhústæki eru af tegundinni, Electrolux og Miele. Viftan er af gerðinni Elica Getup Cast Iron. Vaskur og blöndunartæki eru svört og höldur á neðri skápum svartar. Eldhúsinnréttingunum fylgir innbyggður ísskápur með frystir, svartur ofn, innbyggð uppþvottavél og kolasíu vifta. Eldhústæki eru af tegundinni AEG, Electrolux eða sambærilegt en viftan af gerðinni Elica Lane. Efri skápar eru sprautulakkaðir hvítir og hvítir að innan og neðri skápar með EGGER viðaráferð (Natural Carini Walnut) og dökkgráir að innan. Baðherbergi eru flísalögð og þvottahús þar sem við á en að öðru leyti eru íbúðirnar afhentar án gólfefna. Baðherbergi eru flest frá Boxen og koma forsmíðuð að fullu frá verksmiðju Wilbergs samkvæmt kröfum verktakans Þingvangs og hífð inn í hús samhliða uppsteypu. Búnaður er af vandaðri gerð og allur frágangur til fyrirmyndar.Tæki og salerni frá Grohe.
Í sumum baðhergerjanna er gert ráð fyrir tenginu fyrir þvottavél og barkalausum þurrkara. Í þeim íbúðum þar sem baðherbergin eru staðsmíðuð þá eru sömu innréttingar og flísar og eru frá Boxen böðunum, tækin frá Grohe og niðurfall af tegundinni Unidrain.
Sér þvottahús eru í flestum íbúðum, þá flísalögð með sömu gólfflísum og eru á baðherbergjunum. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar hurðir frá Parka. Útidyr eru Ideal combi. Að hluta til á 2.hæð er hljóðvistardúkur í lofti frá Enso og uppsetningaraðili er Pons ehf.
Íbúðir eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnalögn. Sérgeymslur húsanna eru í kjallara húsanna ásamt tæknirýmum og hjólageymslu. Íbúðum er skilað með ljósi í eldhúsi og led lýsingu undir efri skápum og hillum, á Boxen böðunum er innfelld lýsing fullbúin í lofti og ljós í spegli. Innfelld ljós eru í loftum í alrýmum.
Burðarkerfi húsanna eru forsteyptar steinsteypueiningar. Húsin eru einangruð að utan og klædd með lerkiklæðningu í brunaflokki 1. Allir gluggar eru úr ál/tré. Þakplötur og milliplötur íbúðanna eru fíligraneiningar með ásteypulagi. Allar svalir eru forsteyptar, pallur á 1. hæð er steyptur. Handrið á svölum eru álhandrið með öryggisgleri.
Þess ber að geta að allar íbúðir eru loftræstar með sjálfstæðu loftskiptikerfi sem blæs fersku lofti inn í íverurými og dregur loft út af baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu sem flytur varma úr út soginu yfir í ferska innblástursloftið, sem með því, minnkar upphitunarkostnað íbúða. Ferska innblástursloftið er síað til að hreinsa óhreinindi úr því áður en því er blásið í inn í íverurýmin. Einnig er hitaelement í kerfinu, hægt er að stýra hraða þeirra sem gerir notanda kleift að stilla hitastig á innblásturslofti og stilla loftmagn sem blásið er inn í íbúðina.
Sérafnotareitir íbúða á jarðhæð:
Á sérafnotareit á 1. hæð er steinsteyptur pallur/verönd að hluta. Gert er ráð fyrir að hægt verði að setja svalalokanir á pallinn samkvæmt teikningum. Svalalokanir á palli skulu allar vera framleiddar af Profilshop Danmark ApS frá Pro-Railing ehf gler er glært í samræmi við þegar notað gler og burðarvirki skal vera svart (ral 9005) Til viðbótar er sérafnotareitur utan pallsins, sjá nánar á samþykktum byggingarnefndarteikningum. Eigendum er heimilt að setja upp grindverk og skjólveggi á sérafnotareit utan við pallinn og skulu þeir vera að hámarki 120 cm. á hæð, mælt frá gólfplötu á palli, og klæddir með standandi lerkiklæðningu í samræmi við utanhússklæðningu hússins.
Íbúðum er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (sér þvottahús er ekki í öllum íbúðum), einnig fylgja öll eldhústæki þ.m.t. ísskápur, uppþvottavél og gufugleypir ofl. Þá fylgja fataskápar í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum.
Eldhúsinnrétting er með hvít-spreytulökkuðum efri skápum efri skápar og neðri skápar með viðaráferð. Borðplata er vönduð 19mm ljós með marmaraáferð. Vaskur og blöndunartæki eru svört og höldur á neðri skápum svartar. Ljúflokun er á öllum skúffum. Innfelld LED lýsing/ljós í lofti Gólfhiti verður í öllum rýmum íbúða.
Ofnar eru í sameign og á geymslusvæðum fyrir utan sjálfan bílakjallarann.
Myndir eru af íbúð með samskonar tækjum og innréttingum. Endanleg skil íbúða miðast við skilalýsingu eignarinnar, en þar eru nákvæmar upplýsingar um eignina.
Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.
Athugið að myndir í auglýsingunni eru úr í sýningaríbúð.
Hveragerði - heilsusamfélag
Gönguleiðir og hjólreiðarstígar með mikilli náttúrufegurð • Sundlaug, heitir pottar, gufuböð og líkamsrækt í 150 m göngufæri • Golfvöllur 3 km göngufæri og • Matvöruverslun 1 km göngufæri • Viðhaldsléttar byggingar • Sér inngangar í allar íbúðir • Allar íbúðir hafa möguleika á svalalokunum • Alrýmum snúið út á við til að hámarka útsýni • Stæði í bílgeymslu með öllum íbúðum • Innangengt í bílageymslu frá stigagangi • Möguleiki á rafmagnshleðslu í öllum bílastæðum í bílageymslu • Íbúðir á jarðhæðum hafa veglega sérafnotafleti • Sorpflokkun í djúpgámum
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.