DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Háalind 29

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
145.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
137.900.000 kr.
Fermetraverð
945.168 kr./m2
Brunabótamat
90.100.000 kr.
Byggt 1999
Pallur
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
22295932
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Margir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Miklir möguleikar - Vel skipulagt og bjart parhús með rúmgóðum bílskúr, sólríkri verönd og fallegum garði í grónu og barnvænu hverfi. Húsið er í dag á einni hæð, skráð í fasteignamati 145,9 fermetrar sem skiptist í 114 fermetra íbúð og 31,9 fermetra bílskúr, en rishæð er fyrir öllu húsinu sem breytt hefur verið í íbúðarrými í flestum öðrum svona húsum í götunni. Í dag eru í húsinu tvö rúmgóð svefnherbergi, björt stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi, geymsla/þvottahús sem tengir húsið við bílskúrinn, rúmgóður bílskúr með þvottahúsi/geymslu innst.  Frábær staðsetning í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, verslanir og sundlaug. Seljandi hefur mögulega áhuga á skiptum á íbúð á jarðhæð í nærliggjand hverfum.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.


Gengið er að húsinu eftir stétt sem liggur um mjög fallegan gróinn garð. Við hlið stéttar framan við húsið eru stór blóma- og trjábeð og stór verönd með skjólveggjum. Bílskúr er sambyggður húsinu en gott pláss er fyrir bíla og t.d. ferðavagna á bílaplani og á stæði.
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Opið er úr forstofu í hol þar sem stofur og eldhús eru til hægri, herbergi til vinstri og baðherbergi og geymsla/þvottahús þar sem gengið er í bílskúr beint framundan.
Stofur eru rúmgóðar og bjartar, með stórum gluggum á heilum vegg að verönd, en dyr eru úr stofu út á veröndina. Útsýni úr stofu og af verönd kemur á óvart. Á holi og stofum er parket með breiðum borðum.
Eldhús er til hægri frá holi þegar gengið er til stofu. Rúmgóð viðarlituð innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, stállitaður ofn í vinnuhæð og uppþvottavél, keramik helluborð og hvít borðplata. Flísar á gólfi og milli skápa, stór gluggi veitir mikilli birtu inn í rýmið þar sem er pláss fyrir lítið matarborð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð, en auðvelt væri að skipta þeim frekar upp til að fjölga svefnherbergjum. Fataskápar eru í báðum herbergjum, parket á gólfum. Bæði herbergin eru með stórum gluggum að garði, og eru björt og vistleg eins og allt húsið. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt gólf og veggir, salerni, baðkar, sturtuklefi, handklæðaofn og innrétting. Úr holi má fara í bílskúr gegnum geymslu sem samkvæmt teikningu er þvottahús, en núverandi eigendur nýta geymslu innst í bílskúrnum sem þvottahús þar sem eru dyr að baklóð hússins. Bílskúr er mjög rúmgóður.
Yfir öllu húsinu er óinnréttað risloft, einangrað með einum glugga á gafli. Í flestum húsum af þessarri gerð í götunni þá hefur risið verið innréttað sem hluti af íbúðinni, með svefnherbergjum, fjölskyldurýmum og baðherbergjum. Hér er um að ræða mjög áhugavert tækifæri til að gera eign að sinni og auka nýtingarmöguleika.
Húsið hefur fengið ágætt viðhald gegnum árin en þakjárn þarfnast skoðunar. Á árunum 2022 og 2023 var bakveggur bílskúrsins endurgerður að utan og innan, en veggurinn er úr timbri. 2023 var einangrun í þaki hússins endurnýjuð og endurbætt,  m.a. ull og rakasperra.
 
Mjög notalegt og vel um gengið hús, frábær staðsetning, hús með mikla möguleika.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 16:30-17:00
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
144.2 m2
Fjölbýlishús
322
1109 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 16:30-17:00
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
145.1 m2
Fjölbýlishús
322
1033 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
153.7 m2
Fjölbýlishús
423
1073 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 16:30-17:00
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
150.8 m2
Fjölbýlishús
523
994 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin