Sunna fasteignasala ehf. og Jasmín Erla Ingadóttir, lögg. fasteignasali, kynna eignina Jöfursbás 11b, 112 Reykjavík.Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi við Jöfursbás 11b í Gufuneshverfi, Grafarvogi.
Íbúðin er skráð 55,4 fm og er hluti af nýlegu fjölbýlishúsi byggðu árið 2022. Um er að ræða bjarta og glæsilega íbúð með stuttri leið í náttúruna.
✔ Frábær eign fyrir fyrstu kaupendur
✔ Gæludýrahald er leyft
✔ Kaupendur á aldrinum 18–40 ára njóta forgangs (samkvæmt kvöð á eign)
✔ Glæsilegt umhverfi við sjávarsíðuna í Gufunesi
Nánari lýsing:Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Eldhús og stofa eru í björtu og opnu alrými með parketi á gólfum.
Í eldhúsinu er falleg hvít innrétting með helluborði, viftu, bakarofni og tengi fyrir uppþvottavél. Úr stofu er gengið út á svalir.
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtu, hvítum innréttingum, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi 1 og 2 eru bæði með fataskápum og parketi á gólfum.
Sameign og aðstaða:Á jarðhæð í blokk D er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, snyrtilegt þvottahús og pósthús.
Íbúar hafa einnig aðgang að sameiginlegum veislusal/vinnurými sem hægt er að leigja.
Matjurtagarðar í umsjón Reykjavíkurborgar eru í boði fyrir íbúa. Þar verður heimilt að rækta í vermireitum eða gróðurskýlum (20 eða 40 fm að stærð).
Um hverfið:Jöfursbás 11 stendur á sjávarlóð í hinu nýja og uppbyggilega Gufuneshverfi.
Svæðið einkennist af blandaðri byggð, grænum svæðum og göngu- og hjólastígum sem tengjast eldri hverfum Grafarvogs.
Leik- og dvalarsvæði eru í skjóli innan húsalóðarinnar og torg við inngang hússins nýtist sem miðlægt samkomusvæði.
Gufunes verður framtíðarhverfi þar sem sjálfbærar samgöngur, menning, skapandi iðnaður og fjölbreytt afþreying mynda líflega heild í einstöku sjávarumhverfi.
Nánari upplýsingar veitir Jasmín Erla Ingadóttir, lfs. í síma 772-6979, og netfanginu jasmin@sunnafast.is.