DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 25. ágúst 2026

Staðarborg 15C

Nýbygging • RaðhúsSuðurnes/Vogar-190
82.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.000.000 kr.
Fermetraverð
737.606 kr./m2
Byggt 2026
Garður
Pallur
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2525352_284
Landnúmer
0
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
LIND Fasteignasala & Páll Konráð lgfs kynna með stolti raðhús á einni hæð við Staðarborg 15C í nýju fjölskylduvænu íbúðarhverfi í Vogunum. 

Húsið (15C) er staðsett í Grænubyggð sem er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Frekari upplýsingar um hverfið má finna hér http://www.graenabyggd.is

Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is

Eignin er skráð 82,7 fm. og afhendist fullbúin með öllum gólfefnum. Vestur verönd út af stofu með skjólveggjum. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Afhending eignar er í október 2026

-Gólfsíðir gluggar í alrými.
-Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.
-Aukin lofthæð.
-Hleðslustöð fylgir.
-Lagnaleið fyrir heitan pott.
-Tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús.


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfum og rúmgóðum skápum.
Stofa og borðstofa er í opnu og fallegu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar og setur það mikinn svip á stofuna.
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er frá HTH og tækin frá AEG. Span helluborð með viftu, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergin eru þrjú, öll hafa þau parket á gólfum og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er fyrir ofan baðherbergi, aðgengi frá einu svefnherbergjanna og er möguleiki að nota rýmið sem svefnloft.

Lóð er tyrfð, verönd við bakhlið eru úr timbri (lerki) og er skjólveggur á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum. 

Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is

Staðarborg 15 er 5 hús í raðhúsalengju með 2 bílastæðum fyrir framan hvert hús og stendur í nýju íbúðahverfi í Vogum, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu — leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Þægilegur akstur er bæði til Keflavíkur og höfuðborgarsvæðisins, sem gerir Vogana að fullkomnum stað fyrir fjölskyldur og þá sem vilja lifa í rólegu, grónu umhverfi.

ATH. Myndir í auglýsingu sem sýna innbú voru búnar til með hjálp gervigreindar, það er gert einungis til að gefa hugmyndir að fullbúnu rými, hlutföll og fleiri hlutir geta hliðrast til og ber því að taka þessum myndum með fyrirvara, upprunalegu myndirnar eru einnig til staðar. 

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leirdalur 37
Efsta hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leirdalur 37
Leirdalur 37
260 Reykjanesbær
97,6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
716 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Háteigsvegur 23
Opið hús:05. nóv. kl 16:15-16:45
Skoða eignina Háteigsvegur 23
Háteigsvegur 23
105 Reykjavík
77,3 m2
Fjölbýlishús
123
827 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 35 (209)
IMG_2001.jpeg
Mýrargata 35 (209)
101 Reykjavík
84,4 m2
Fjölbýlishús
413
1019 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Lautasmári 5
Hleðslustöð
Skoða eignina Lautasmári 5
Lautasmári 5
201 Kópavogur
105,1 m2
Fjölbýlishús
413
779 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin