Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isGrænamýri 9 - Glæsilegt og mikið endurnýjað 5 herbergja einbýlishús á eftirsóttum stað á Brekkunni - stærð 200,8 m².Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, sjónvarpshol, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi, gólfhita og stórum hvítum fataskáp.
Holið er rúmgott með grenipanil á gólfum, fjórföldum hvítum fataskáp og tengir það saman helstu rými eignarinnar.
Eldhúsið er með fallegri ljósri U-laga viðarinnréttingu, ljósri borðplötu og miklu skápa- og vinnuplássi. Hvítar flísar eru á milli efri og neðri skápa og veggur við vask er flísalagður upp í loft.
Stofan er björt og rúmgóð með grenipanil á gólfum. Úr stofu er gengið út á hellulagða suðausturverönd og gróinn garð.
Sjónvarpsholið er milli stofu og eldhúss og nýtist það rými einstaklega vel.
Svefnherbergin eru fjögur. Þrjú þeirra eru með grenipanil á gólfum og miklu skápaplássi en herbergi inn af forstofu er með plastparketi á gólfi.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað og er glæsilegt með dökkum flísum á gólfi og veggjum, gólfhita, rúmgóðri sturtu með glervegg, vegghengdu wc, hvítum innréttingum og handklæðaofni.
Þvottahúsið er í kjallara með máluðu gólfi, borði með skolvaski og góðu hilluplássi.
Geymslan er einnig í kjallara inn af þvottahúsi.
Annað:- Baðherbergi var tekið í gegn árið 2019
- Húsinu var breytt í íbúðarhús árið 1981 og þá voru allar lagnir endurnýjaðar
- Gróinn og skjólgóður garður
- Geymsluskúr er á lóðinni sem og garðskýli sem fylgja með við sölu
- Tengi fyrir hleðslustöð var sett upp á vestur hlið hússins við bílaplanið
- Einstaklega vel staðsett eign á vinsælum stað á Brekkunni
- Hitaþráður er í þakrennu
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.