Fasteignaleitin
Skráð 27. des. 2024
Deila eign
Deila

Asparholt 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
116.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
80.900.000 kr.
Fermetraverð
692.637 kr./m2
Fasteignamat
72.400.000 kr.
Brunabótamat
54.500.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2004
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2272229
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Svalir
Já, mikið og gott útsýni
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélagsins, skv. yfirlýsing húsfelags dagsett 21.11.2024, þar kemur fram að fyrirhugaðar framkvæmdir snúa málun bílastæða, gert er ráð fyrir kostnaði á húsfélagið kr. 158.000. Fyrirhugað er að framvæmdir verði vor 2025 
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Vel skipulögð og rúmgóð fjögurra - fimm herbergja 116,8 fm. endaíbúð á efstu hæð við Asparholt 6, 225 Garðabær (Álftanesi) Íbúðin er með þrjú svefnherbergi og sér geymslu innan íbúðar sem er með opnanlegum glugga ( Mögulegt er að nýta geymsluna sem fjórða herbergið fyrir þá sem þess þurfa ) Sér þvottahús, baðherbergi og opið alrými með eldhús, stofu og borðstofu ásamt svölum með útsýni til sjávar og fjalla. 

Íbúðinni fylgja tvö þinglýst bílastæði (Sérmerkt stæði fyrir framan blokkina, og annað sérmerkt stæði við hlið blokkarinnar sem hugsað er sem hleðslustæði (rafmagn komið í staur og allt tilbúið fyrir láta setja upp hleðslustöð) Framkvæmt 2024.

Allar innréttingar eru íslensk sérsmíði frá Fagus, þvottahúsinnrétting er sérsmíði frá Brúnás og parketið er pergoparket.

Að utan er nýlega búið að sprunguviðgera og sílanbera klæðningu, Stigagangur málaður 2023, skipt var um öll ljós í sameign 2023 (led og birtustýrð) og bílastæði máluð 2024.

Smelltu á link til að sjá íbúðina í 3-D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is


Nánari lýsing: 
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp, gluggi veitir góða birtu inn. Innangengt er frá forstofu inn í geymslu með flísalagt gólf og opnanlegum glugga (sumir hafa nýtt það rými sem fjórða svefnherbergið)
Gangur leiðir að opnu alrými sem telur stofu, borðstofu og eldhús með gluggum á tveimur hliðum. Bjart og rúmgott alrými með útgengi út á svalir í norð-vestur með gott og flott útsýni.
Eldhúsinnrétting er U-laga með helluborð og viftu þar fyrir ofan, vaskur og gott vinnu- og borðpláss. Efri og neðri skápar, bökunarofn í vinnu hæð og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. og góðum tækjum. 
Hjónabergi er rúmgott með fataskápum, hin herbergin tvö eru líka rúmgóð en annað þeirra er án fataskápa.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Innrétting með handlaug og skúffur og hillur þar fyrir neðan ásamt skápum þar við hlið og spegill þar fyrir ofan. Baðkar og sér sturtuklefi og upphengt salerni. 
Sér þvottahús er innan íbúðar með dökkum flísum á gólfi og hvítri innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Íbúðinni fylgja tvö þinglýst bílastæði.

Eignin er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað á Álftanesinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttastarf.

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðiholt 1 - 102
Víðiholt 1 - 102
225 Garðabær
97.1 m2
Fjölbýlishús
43
823 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 1 íb 105
Víðiholt 1 íb 105
225 Garðabær
96.6 m2
Fjölbýlishús
412
813 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 3 íbúð 103
Víðiholt 3 íbúð 103
225 Garðabær
97.2 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 3 íb 103
Víðiholt 3 íb 103
225 Garðabær
97.2 m2
Fjölbýlishús
412
808 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin