Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Nýlegt og vandað raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, sólpalli, rúmgóðu alrými og fallegum garði ásamt góðum geymsluskúrá lóð.
Eign sem höfðar til breiðs kaupendahóps:
fyrstu kaupendur
þá sem eru að minnka við sig
eldri kaupendur sem vilja eign á einni hæð eða jarðhæð
litlar fjölskyldur
fólk sem vill lítið viðhald
fólk sem er með gæludýr
Hjarta heimilisins er bjart og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á náttúrulegan hátt. Miðpunktur alrýmis er svo stór eldhúseyja með miklu geymslu- og vinnuplássi. Gott rými til að sitja, auðvelt hvort sem er að taka á móti gestum eða njóta morgunbollans við upphaf hvers dags.
Eigendur eru fluttir erlendis, er því íbúðin tóm og afhendist við kaupsamning.
Þessi raðhús voru byggð 2022 af byggingarfyrirtækinu Sparra ehf., sem er vel þekkt fyrirtæki á suðurnesjum með 30 ára viðskiptasögu og eigendur þess þekktir af góðu handverki (sjá nánar með að klikka hér)
Húsið er með vönduðum innréttingum frá HTH sem skapa tímalaust og fallegt yfirbragð.
Innangengt er úr andyri íbúðar inn í bílskúrinn sem auðveldar daglegt líf allt árið. Bílskúrinn er með rafdrifinni bílskúrshurð, máluðum gólfum og skolvaski.
Eignin er í dag með tveimur svefnherbergjum en auðvelt er að bæta aukaherbergi við með því að taka rými af bílskúrshluta.
Frá stofu og úr öðru svefnherberginu er útgengt skjólgóðan sólpall móti suðri. Fyrir framan pallinn er sérafnotareitur með grasi og geymsluskúr (9,5 fm að stærð) sem nýtist vel fyrir grill og útivistarbúnað.
Samanstendur húsið af 101,7 fm nýlegu raðhúsi ásamt 28,3 fm innbyggðum bílskúr og til viðbótar er geymsluskúr á lóð um 9,5 fm, samtals er því stærð eignar alls 139,5 fm.
Eignin er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi með leikskóla, grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu í göngufjarlægð. Náttúran er jafnframt rétt handan við hornið.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.