DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:19. sept. kl 13:00-13:30
Skráð 15. sept. 2026

Strandasel 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
67 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
849.254 kr./m2
Fasteignamat
49.850.000 kr.
Brunabótamat
36.050.000 kr.
Mynd af Guðný Ósk
Guðný Ósk
stofanfasteignir.isEignalisti
Byggt 1975
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2054636
Landnúmer
112887
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
03
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Strandasel 5 - Reykjavík
*Frábær fyrstu kaup*

Opið hús laugardaginn 19.september frá kl 13:00-13:30
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á gudny@stofanfasteignir.is

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta og fallega 2 herbergja íbúð á 2.hæð við Strandasel 5, Reykjavík. Skráð samtals 67 fm skv. HMS.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum árin.


Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á skjólgóðar suðursvalir.
Eldhús er með fallegri innréttingu, flísar á milli skápa. Bakarofn, helluborð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting og speglaskápur. Salerni, sturta og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla staðsett í sameign í kjallara (8,2 fm).
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Sameignlegt þvottahús á jarðhæð - mjög rúmgott.
Sameignin er einstaklega snyrtileg.
Leiguíbúð í kjallara sem er í sameign íbúa og fær húsfélagið leigutekjur af því.

Endurbætur skv.seljanda:
Skipt um hurðar í íbúð 2024
Skipt um innréttingu á baðherbergi 2026
Nýtt blöndunartæki í eldhúsi 2024
Gluggar endurnýjaðir á norðurhlið hússins (fyrir utan glugga í stigagangi).
Malbiksviðgerðir á bílaplani 2022
Þak yfirfarið og málað 2022
Eldvarnarhurðir settar í íbúðir, millihurð í sameign, þvottahús og geymslugang 2021
Loftræstikerfið hreinsað og skipt um mótor 2020
Ný teppi á sameign og málað 2019
Múrviðgerðir og málun að utan 2016-2017
Húsið klætt á hliðum með báruklæðningu og einangrað á austur og vesturgafl hússins og nýjir gluggar á hliðum hússins.

Þetta er björt og falleg eign þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Húsinu hefur verið vel við haldið og lítur vel út.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/202028.850.000 kr.31.550.000 kr.67 m2470.895 kr.Nei
05/04/201616.650.000 kr.22.000.000 kr.67 m2328.358 kr.
21/04/200813.820.000 kr.8.150.000 kr.67 m2121.641 kr.Nei
17/07/200712.405.000 kr.16.600.000 kr.67 m2247.761 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurbrú 5
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Norðurbrú 5
Norðurbrú 5
210 Garðabær
79.9 m2
Fjölbýlishús
211
975 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Eiðistorg 3
Skoða eignina Eiðistorg 3
Eiðistorg 3
170 Seltjarnarnes
61.1 m2
Fjölbýlishús
211
980 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 31
Hleðslustöð
Skoða eignina Naustabryggja 31
Naustabryggja 31
110 Reykjavík
104 m2
Fjölbýlishús
413
749 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 5
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:17. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Haukahlíð 5
Haukahlíð 5
102 Reykjavík
51.2 m2
Fjölbýlishús
211
1229 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin