** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **Ath. það eru leigjendur í íbúðinni og þarf því að vera einhver fyrirvari á skoðunartíma.
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Bjarta og fallega 69,9 m² 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, með sérinngangi og afgirtri verönd til suðurs í góðu fjölbýli í Hafnarfirði. Eignin státar af rúmgóðum og björtum rýmum, tveimur svefnherbergjum, snyrtilegu baðherbergi og góðri geymslu með glugga sem býður upp á möguleika á að nýta sem þriðja herbergið. Gólfefni eru harðparket og flísar. SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaÚtgengt úr stofu á ca 22 fm afgirtan sérafnotareit íbúðar / timbur verönd. Íbúðin er vel staðsett í rólegu umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. matvöruverslanir, skóla og leikskóla.
Nálægð við Ásvallalaug og íþróttasvæði Hauka gerir staðsetninguna enn eftirsóknarverðari fyrir fjölskyldur.
Næg bílastæði eru við húsið að framanverðu. Sameiginlegur garður/leiksvæði með Bjarkavöllum 1A - 1B - 1C og 1D er baka til í skjóli allra húsanna.
SMELLTU HÉR fyrir ALLAR upplýsingar um eigninaNánari lýsing eignar:Forstofa: Flísalögð forstofa með góðum fataskápum.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er á rúmgóða afgirta timbur verönd sem er sérafnotareitur íbúðar. Hægt er að ganga út um hlið af veröndinni í sameiginlegan garði þar sem eru leiktæki fyrir börn.
Eldhús: Eldhúsið er með smekklegri innréttingu, flísum á milli efri og neðri skápa og hillur eru í horni við ísskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalegt á gólfi og veggjum með innréttingu, sturtuklefa og handklæðaofni.
Herbergi I / Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Herbergi í góðri stærð með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Geymsla / Þriðja herbergið: Geymsla með glugga sem býður upp á möguleika á að nýta sem þriðja herbergið. Harðparket á gólfi.
Sameign og umhverfi:Sameiginlegt þvottahús: Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir íbúa hverrar hæðar fyrir sig, þar sem hver íbúð er með sér tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjóla- og vagnageymsla: Í kjallara hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Næg bílastæði eru við húsið fyrir íbúa og gesti.
Garður og leiksvæði: Sameiginlegur garður og leiksvæði er á bak við húsið, sunnan megin.
Um er að ræða vel staðsetta eign í fjölskylduvænu hverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og matvöruverslanir, skóla, leikskóla, Ásvallalaug og íþróttasvæði Hauka.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk