** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr við Heiðarlund 4 í Garðabæ. Búið er að búa til auka íbúð í eigninni. Stór lóð, 1.212 m2. Steypt bílaplan. Gróðurhús og timburverönd í bakgarði. Eignin er skráð 191 m2 samkvæmt fasteignayfirliti HMS. Árið 1987 var byggt um 40 m² við húsið, en sú viðbygging er ekki skráð í fasteignaskrá né fasteignamati. Heildarflatarmál eignarinnar, að viðbyggingunni meðtalinni, er því áætlað um 231 m². Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi (fjögur á teikningu), Baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu, sjónvarpshol, eldhús með borðkrók, stofu, borðstofu og bílskúr. Auka íbúðin skiptist í: Svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og forstofu.
Samkvæmt seljanda var járn og þakpappi á þaki endurnýjaður fyrir um 10 árum. Jafnframt var skipt um borðklæðningu eftir þörfum og þakkantur lagfærður eftir þörfum.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með handlaug og salerni, flísar á gólfi.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Úr borðstofu er útgengt út í bakgarð.
Eldhús er með eldhúsinnréttingu og borðkrók, korkflísar á gólfi.
Þvottahús er með innréttingu og máluðu gólfi. Úr þvottahúsi er útgengt út í bakgarð.
Gangur er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, með innréttingu með handlaug, salerni, 'walk-in' sturtu og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi. Er tvö herbergi á teikningu.
Svefnherbergi 3 er inn af forstofu með dúk á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður með tveimur innkeyrsluhurðum, skráður 49 m2.
Auka íbúð:Forstofa, stofa og eldhús eru í sama rými með parketi á gólfi, eldhúsinnréttingu með ofni og helluborði með tveimur hellum. Gert er ráð fyrir lítilli uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Tengi fyrir þvottavél er í rýminu.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu með handlaug, salerni, sturtuklefa og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi og gott hillupláss.
Verð 197.000.000 kr.