Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega falleg, björt og vel skipulögð 5 herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr á þessum frábæra stað í Vatnsendahverfinu í Kópavogi. Stórglæsilegt útsýni er út úr íbúðinni yfir Elliðavatnið, upp í Heiðmörk og allan fjallahringinn í austurátt. íbúðin er skráð á 2.hæð hússins og er á efstu hæð. Frábært bílskúr skráður 27,2 m2 er á jarðhæð hússins og innst í honum er góð geymsla sem skráð er 9 m2 að auki, geymslan er ekki stúkuð af og er því skráning rýmisins samanlagt 36,2 m2. Íbúð á hæð er skráð 147,7 m2 og skiptist hún í forstofu, gott alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, 2 baðherbergi, 4 svefnherbergi og sér þvottaherbergi. Tvennar svalir eru á íbúðinni, aðrar með glæsilegu útsýni sem snúa í suðaustur og hinar eru á bakhlið hússins og snúa í vestur.
Vatnsendahverfið er sérlega barnvænt og rólegt hverfi þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fimleikastarf Gerplu (Vatnsendaskóla) og íþróttahöllina Kórinn sem hefur upp á fjöldann allan af íþróttaiðkun að bjóða.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.isNánari lýsing eignar:Keyrt er að húsinu á hæð 0. Þar er keyrt beint að bílskúrum hússins og á móti eru næg bílastæði. Gengið er upp tvær hæðir á hægri gafli hússins upp að íbúðinni og þar inn um sérinngang inn í hana.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og og góðum innfeldum fataskáp.
Alrými: Eldhús, borðstofa, setustofa.
Eldhús: Þegar komið er inn úr forstofu er bjart og rúmgott alrými á vinstri hönd. Eldhúsið er með góðri innréttingu á einn vegg með neðri skápum, opnum hillum og stórri eyju. Innréttingin er úr eik með ljósri borðplötu. Mjög gott skápapláss og gott vinnupláss er við innréttinguna. Ofn er í vinnuhæð, helluborð og innbyggð uppþvottavél. Pláss er fyrir barstóla við hluta af eyjunni.
Borðstofa: Fyrir framan eldhúsið er góð borðstofa með parketi á gólfi og stórum gluggum með glæsilegu útsýni. Gengið er út á rúmgóðar útsýnissvalir.
Setustofa: Við hlið borðstofunnar fyrir framan eldhúsið er einnig rúmgóð setustofa með parketi á gólfi með stórum og skemmtilegum útsýnisgluggum.
Baðherbergi nr.1: Gott baðherbergi með glugga er við hliðina á forstofunni þegar komið er inn í íbúðina. Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Góð sturta er í enda baðherbergisins með glervegg. Falleg eikar innrétting er undir vaskaborði við stóran spegil. Handklæðaofn er á vegg og upphengt salerni.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er mjög rúmgott og bjart með parket á gólfi. Góð eikar innrétting með skápum og skúffum er á vegg, veggja á milli.
Barnaherbergi nr.1: Mjög rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi nr.2: Mjög rúmgott herbergi með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi nr.3: Mjög rúmgott herbergi með parketi gólfi og góðum fataskáp, Gengið út á svalir sem snúa í vestur.
Baðherbergi nr.2: Á svefnherbergisgangi er baðherbergi með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Góð eikar innrétting er undir vaski fjórum skúffum undir vaski og skáp á vegg við hlið spegils. Baðkar og sturta eru í rýminu. Handklæðaofn er á vegg og salerni er upphengt. Opnanlegur gluggi.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi, hillum á tveimur veggjum, vinnuvask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr + geymsla: Bílskúrinn er 27,2 fm. mjög snyrtilegur með flísum á gólfi, sjálfvirkum hurðaopnara, skolvask, hita og rafmagni. Rúmgóð geymsla er í enda bílskúrsins, skráð 9 m2. Bílskúr og geymsla eru saman í opnu rými.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is