Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 4. og efstu hæð með bílskúr í góðu fjölbýli í Álftamýri. Nýlega búið að skipta um gólfefni, endurnýja baðherbergi og eldhús. Eignin getur verið laus nokkuð fljótt.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Fyrirhugað fasteignamat 2025 er 70.400.000 kr.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 123,9 fm og þar af bílskúr 20,9 fm og geymsla 6,7 fm.
Nánari lýsing:
Forstofuhol með parket á gólfi.
Stofa og
borðstofa í einu rými, rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á suður svalir.
Eldhús endurnýjað 2020 með flísar á gólfi, innbyggða uppþvottavél og gufugleypi yfir helluborði.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi endurnýjað 2019 með walk-in sturtu, upphengt salerni, flísar á gólfi og vegg að hluta.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Þvottahús í sameign þar sem hver er með sitt tengi.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Framkvæmdir og viðhald síðustu ára:Sumarið 2024 var skipt um glugga og gler í húsinu að hluta, aðrir gluggar málaðir. Yfirstandandi framkvæmdir - verið er að mála gafl á húsi og gluggaviðgerðir á suðurhlið.
2017-2018 var húsið sprunguviðgert og málað í heild sinni.
2017 var þak endurnýjað og soðinn dúkur/þakklæðning settur yfir alla bílskúra, ljósum á bílskúrum skipt út fyrir ný.
Miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og stutt í mennta-, grunn- og leikskóla sem og alla þjónustu. Kringlan og Öskjuhlíðin í göngufæri.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is