DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2026

Breiðvangur 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
135.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
589.668 kr./m2
Brunabótamat
68.100.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20739801
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Davíð Matthíasson, lögg. fasteignasali – 898-1713 / david@landmark.is kynna:

Glæsilega og bjarta 4ra herbergja íbúð á 1.hæð við Breiðvang 28 í Hafnarfirði.
Íbúðin er skráð 114 m², vel skipulögð, telur stofu og rúmgott eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvotthús sem er innan íbúðar.
Sérgeymsla 21,5 m² sem er því afar rúmgóð. Heildarstærð eignar er 135,5 m². Gott aðgengi og gengið er beint inn í íbúð frá aðalinngangi.

✅ Rúmgóð og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð 
✅ Fyrsta hæð, gott aðgengi 
✅ Björt íbúð með stórum gluggum
✅ Stór og rúmgóð sérgeymsla sem bíður upp á ýmsa möguleika
✅ Vel staðsett í Hafnarfirði, stutt í alla þjónustu 


Nánari lýsing
Forstofa: Mjög rúmgóð með harðparketi á gólfi. 
Stofa/borðstofa:  Björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Gluggar vísa í tvær áttir og útgengt er á svalir sem er skemmtileg viðbót við stofu.
Eldhús: Opið og bjart með góðum gluggum og snyrtilegri eldhúsinnréttingu, ofni og helluborði, harðparket á gólfi. Þvottahús er inn af eldhúsi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi I : Er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II : Er með harðparketi á gólfi
Baðherbergi: Flísalagt með sturtu og baðkari, baðinnréttingu með vaski. 
Geymsla: Er í sameign, mjög stór og hægt væri að skipta henni upp í tvö rými.
Hjólageymsla: Í sameiginlegum gangi.

Staðsetning
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi, göngufæri er í  Engidalsskóla. Einnig er stutt í leiksskóla, verslanir og helstu þjónustu. 

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Framkvæmdir að sögn eiganda. 
2025 - þak yfirfarið og þakjárn endurnýjað 
2024 - gluggar og gler endurnýjaðir þar sem þurfti 
2024 - sprunguviðgert og málað að utan 

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 898-1713 / david@landmark.is
 

Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Traðarberg 5
Skoða eignina Traðarberg 5
Traðarberg 5
221 Hafnarfjörður
120.5 m2
Fjölbýlishús
413
729 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 3 íb. 501
Bílastæði
Baughamar 3 íb. 501
221 Hafnarfjörður
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
764 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 602
Bílastæði
Laugaborg íbúð 602
105 Reykjavík
140.7 m2
Fjölbýlishús
423
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 505
Bílastæði
Laugaborg íbúð 505
105 Reykjavík
129.7 m2
Fjölbýlishús
423
1302 þ.kr./m2
168.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin