RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Háabarð 13, Hafnarfirði fnr. 207-5075Húsið var byggt árið 1983 og er einbýlishús á tveimur hæðum. Samkvæmt Þjóðskrá er húsið skráð 243,4 fm og er íbúðarhluti efri hæðar 139,4 fm og íbúð á neðri hæð er skráð 68,8 fm. Bílskúr er skráður 35,2 fm. Skráð byggingarefni er steypa og timbur.
3D - SKOÐAÐU EIGNINA Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðalhæð:Aðkoma: Hellulagt bílaplan og að inngangi í húsið. Hitalögn er undir bílaplani.
Forstofa: Flísar á gólfi. Möguleiki á góðu fatahengi
Þvottahús: Með góðu skápaplássi, borði og gamalli innréttingu, útgengt í bakgarð
Gestasnyrting: Rýmið var gert upp 2020. Flísar á gólfi. Handlaug og salerni.
Hol: Rými sem gæti nýst fyrir stóran hornskáp, þar var áður gengið niður á neðri hæð, því hefur alveg verið lokað í leiguíbúðinni en frágangur á aðalhæð er með eldvarnarplötu og mottu yfir. Parket á gólfi.
Borðstofa/stofa: Mjög rúmgóð rými með góðri lofthæð og parketi á gólfi. Útgengt út úr stofu á góðan sólpall sem snýr í suð/vestur með rafmagnspotti.
Eldhús: Parket á gólfi. Upprunaleg HTH innrétting sem var uppgerð árið 2019. Flísalagt á milli efri og neðri skápa. Sambyggð eldavél/bakstursofn frá Siemens með viftu yfir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Svefnherbergi/barnaherbergi: Eru þrjú talsins og er parket á gólfum þeirra. Fataskápur er í einu herbergjanna.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með steinborðplötu. Með góðri sturtu og tengi fyrir baðkar ef fólk vill, (var þar áður hornbaðkar). Upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi er í baðherberginu.
Íbúð á neðri hæð:Sérinngangur - Gengið vinstra megin við bílskúr og niður tröppur. Íbúðin er í útleigu með góðum leigjendum til rúmlega þriggja ára.
Íbúðin er skráð 68,8 fm og samanstendur af:Lítil forstofa - Eldhús með uppgerðri ágætis innréttingu og borðkrók
Stórt svefnherbergi með eldri innbyggðum skápum í góðu standi
Þvottahús með góðu geymsluplássi og þar til gerðum hillum
Stofa með tveimur gluggum
Baðherbergi með sturtu, sem gert var upp 2018
Nýtt parket 2018 sem og tveir nýjir ofnar 2021.
Allt nýlega málað og snyrtilegt
Bílskúr: Bílskúrinn er skráður 35,2 fm hjá Þjóðskrá. Bílskúr er með skápum og uppgengt á háaloft sem er yfir rúmlega helmingi hússins þar sem lofthæðin er mun meiri í samverurými. Innkeyrslu hurð með fjaropnun og einnig er inngönguhurð í skúrinn. Stór innkeyrsla sem rúmar marga bíla. Hitalögn er í bílaplani.
Lóðin: Garður að framan með steinum, góðum blómabeðum, rabbarbara, viltri myntu o.fl. Þar hefur einnig verið hellulagt að hluta og hefur nýst til að ná síðustu sólargeislunum eða leggja kerru/bíl
Garður að aftan með litlum palli fyrir aftan húsið. Góður pallur með heitum potti (rafmagns) og útgengi í fremri garð sem og aftari.Stóra palli verið vel við haldið en pallur í bakgarði þyrfti yfirhalningu en borið á 2023. Möguleiki á gestahúsi þar eða góðum geymsluskúr, má vera allt að 14,9 fm. án leyfis.
Háabarð er vel staðsett einbýlishús með aukaíbúð á neðri hæð. Nýir gluggar eru í öllu húsinu (klárað 2024) en ekki leiguíbúðinni, en þeir eru í góðu standi. Það á eftir að skipta um tvo litla glugga á aðal hæð, á stóra baðherberginu og í þvottahúsinu, þeir fylgja með, en ekkert sem þarf að gerast strax.
Nýr þakkantur á öllu húsinu, lokið 2023. Þak yfirfarið 2023 og er í góðu standi. Ljós og luktir á pallinum endurnýjað og endurbætt árið 2022. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf. í síma
861-7507 eða
daddi@remax.is.
- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.