Litlahlíð 2f - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með bílskúr - Stærð 158,2 m².
Mjög vel staðsett íbúð, stutt er grunn- og leikskóla sem og íþróttasvæði Þórs.
Eignin verður sýnd á opnu húsi fimmtudaginn 5.9 kl 12.15-13.00.Nánari upplýsingar í síma
888-6661 eða senda tölvupóst á siggithrastar@kaupa.is
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Neðri hæð: Forstofa, eldhús, stofa/borðstofa, gestasnyrting, þvottahús og bílskúr.
Efri hæð: Fjögur svefnherbergi, baðherbergi og hol.
Forstofa er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með ljósri innréttingu, með innbyggðri uppþvottavél, helluborði og bakaraofni í vinnuhæð. Innfelld lýsing er í eldhúsi. Flísar eru á gólfi og þar er gólfhiti.
Stofa/borðstofa er með harðparketi á gólfi, þaðan er gengt út á góða timburverönd er snýr til suðvesturs.
Svefnherbergin eru fjögur og eru þau öll á efri hæð íbúðarinnar. Öll eru með harðparketi á gólfi og er nýr fataskápur í hjónaherbergi.
Hol efri hæðar
er með harðparketi á gólfi, þar hefur verið útbúið fatarými með rúmgóðum fataskápum. Úr holi er lúga uppá háaloft.
Baðherbergi er á efri hæð og er það allt uppgert. Snyrtileg innrétting, upphengt wc, walk-in sturta með innfelldum blöndunartækjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Flísar eru á gólfum og veggjum.
Gestasnyrting er inn af forstofu, þar er upphengt wc og vaskur. Flísar á gólfi.
Þvottahús er einnig inn af forstofu, í dag er það ekki notað sem þvottahús og er þar gott geymslupláss. Sér inngangur er í þvottahús.
Bílskúr, 24,9 m², er með rafdrifinni bílskúrshurð, gólf er málað og vegghillur. Undir bílskúr er geymsla, svipuð að stærð og bílskúr. Um tveggja metra lofthæð. Fermetrar í geymslu sem er undir bílskúr eru ekki inní heildar fermetrafjölda íbúðar.
Annað:- Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar á meðal:
- Þak endurnýjað
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2012, settur gólfhiti í eldhús
- Baðherbergi á efri hæð endurnýjað
- Gólfefni á árunum 2012-2015
- Timburverönd 2015
- 2023 voru allar innihurðar nema tvær endurnýjaðar.
- Tvennar svalir eru á húsinu og er gengið út á þær annarsvegar úr hjónaherbergi og hinsvegar úr einu barnaherbergi.
- Nýir fataskápar í holi og hjónaherbergi.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.