VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu raðhús við Réttarheiði 7, 810 Hveragerði.
Um er að ræða fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr.
Eignin er samtals 148,8 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðarhlutinn er skráður 122,7 m² en bílskúr er skráður 26,1 m².
Eignin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, bjart alrými með eldhúsi og stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bílskúr.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð og þar er tvöfaldur fataskápur. Frá forstofu er innangengt í bílskúr með geymslulofti.
Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf. Þar er innrétting með handlaug, skápa og skúffuplássi, salerni, handklæðaofn, baðkar og sturtuklefi.
Þvottahús er inn af baðherbergi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara og þar er lítil innrétting með skolvaski.
Svefnherbergi eru þrjú, öll parketlögð og með fataskápum.
Eldhús er opið og bjart og þar er innrétting með góðu skápa og skúffuplássi. Einnig er eldhúseyja með vinnuplássi, skápum og skúffum. Þá er einnig gaseldavél í eyjunni og háfur yfir henni.
Stofa og borðstofa saman í opnu og börtu rými. Upptekin loft og flísar á gólfi
Útgengt er úr stofu á skjólgóða timburverönd og aflokaðan garð er snýr í suður.
Alrýmið er rúmgott, flísalagt og með uppteknu lofti.
Bílskúr er með flísum á gólfi og geymslu/millilofti.
Bílaplan er hellulagt og pláss fyrir þrjá bíla í stæði.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.