Eignamiðlun kynnir:
Glæsilegt og einstaklega vel skipulagt 181,1 fm endaraðhús á einni hæð við Sæviðarsund 34, teiknað af Kjartani Sveinssyni. Húsið stendur á rólegum og grónum stað í nágrenni við Laugardalinn og hefur verið töluvert endurnýjað á vandaðan hátt á síðustu árum. Eignin einkennist af skemmtilegum arkitektúr, mikilli lofthæð, góðri náttúrulegri birtu og fallegu samspili stofu, borðstofu og eldhúss. Við suðurhlið hússins er skjólgóður og gróinn garður með stórri verönd, heitum potti og útisturtu. Innbyggður 23,5 fm bílskúr fylgir eigninni.
Eignin er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir og aðra helstu þjónustu. Laugardalurinn með fjölbreyttri útivistar- og íþróttaaðstöðu er skammt undan og góðar samgöngur eru í allar áttir.**Sækja söluyfirlit**Skráð stærð eignarinnar samkvæmt fasteignaskrá er samtals 181,1 fm, þar af er íbúðarhluti 157,6 fm og innbyggður bílskúr 23,5 fm.
Skipulag eignarEignin skiptist í forstofu, gestabaðherbergi, bjart miðjurými, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, aðalbaðherbergi, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr. Við suðurhlið hússins er stór og skjólgóð verönd með heitum potti og útisturtu.
Nánari lýsingForstofa er flísalögð og með innbyggðum fataskáp. Til hliðar við forstofu er gestabaðherbergi, flísalagt á gólfi og veggjum og með handklæðaofni.
Við forstofu er einnig rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Úr forstofu er gengið inn í einstaklega bjart og fallegt miðjurými sem setur sterkan svip á húsið. Þar er mikil lofthæð og þakgluggar sem hleypa ríkulegri dagsbirtu inn í húsið. Í miðjurýminu er stór og veglegur arinn ásamt sérsmíðuðum bókahillum. Innfelldar rennihurðir gera kleift að aðskilja rýmið frá stofu og eldhúsi eftir þörfum.
Eldhús, stofa og borðstofa mynda saman rúmgott og bjart alrými með gluggum á þrjá vegu og góðu flæði milli rýma.
Eldhúsið er með ljósri ALNO-innréttingu og mjög góðu skápaplássi. Steinn er í borðplötum og vaskur innfelldur. Flísar eru á vegg milli efri og neðri skápa. Tæki eru meðal annars bakaraofn frá Miele, gashelluborð, innbyggð AEG-uppþvottavél í vinnuhæð og tvöfaldur GE kæli- og frystiskápur. Við eldhúsið er flísalagður borðkrókur sem afmarkar rýmið á fallegan hátt.
Inn af eldhúsi er þvottaherbergi með innréttingu og útgengi til norðurs.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar. Vegleg sérsmíðuð skápaeining skilur rýmin að og úr borðstofu eru stórar rennihurðir úr gleri sem opnast út á verönd og tengja innirýmið fallega við garðinn.
Við suðurhlið hússins er stór og skjólgóð verönd í grónum garði. Þar er falleg útilýsing, heitur pottur og útisturta og skapast þar notalegt útirými sem nýtist vel stóran hluta ársins.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og beinu útgengi á veröndina.
Við hlið hjónaherbergis er mjög rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Rýmið var upphaflega tvö svefnherbergi og því er möguleiki á að breyta því aftur í fyrra horf og fjölga þannig svefnherbergjum.
Aðalbaðherbergi er rúmgott og flísalagt á gólfi og veggjum. Þar er stór sturta með glervegg frá gólfi upp í loft, HTH-innrétting, speglaskápar, steinn í borðplötu, innfelldur vaskur, upphengt salerni og handklæðaofn.
Á gólfum hússins er að mestu brasilískur harðviður lagður í fiskibeinamynstri ásamt flísum. Gólfhiti er á aðalbaðherbergi og í borðstofu. Vönduð innfelld lýsing er víða í húsinu.
Bílskúr er 23,5 fm, innbyggður í húsið og með rafdrifinni innkeyrsluhurð. Framan við húsið er stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.
Sæviðarsund 34 er einstaklega falleg og vel viðhaldin eign þar sem vandaður arkitektúr, björt og rúmgóð rými og skjólgóður suðurgarður fara vel saman. Húsið hefur fengið gott viðhald og töluverða endurnýjun hjá núverandi eigendum og býður upp á vandað fjölskylduhúsnæði á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita:Kjartan Hallgeirsson - Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir - Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook