DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2026

Hnjúkamói 14, íbúð 0103

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
53.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.500.000 kr.
Fermetraverð
853.659 kr./m2
Fasteignamat
16.200.000 kr.
Mynd af Guðbjörg Heimisdóttir
Guðbjörg Heimisdóttir
Geymsla 2.4m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2535035
Landnúmer
237175
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Hnjúkamói 14, íbúð 0103.  Ný, falleg og björt 50,9m2 íbúð á jarðhæð með 2,4m2 sér geymslu og sér  inngang. 
Íbúðin er með 1 stóru svefnherbergi.   Úr alrými er utangengt á mjög góða, timburklædda verönd með skjólveggjum beggja megin, sem snýr í vestur.  
Afhending í september 2026.

** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

(Myndir að innan eru úr sýningaríbúð 0101.  Útlit innréttinga er hið sama en skipulag aðeins annars konar, t.d. er ekki eyja í eldhúsi heldur bein innrétting á vegg sem snýr að baðherbergi.)

Eignin telur:


* Forstofu með skáp.

* Fallega stofu og eldhús í opnu rými. 
Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð Voke III innrétting, vönduð AEG heimilistæki;  sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur.

* Utangengt er úr stofunni á sér, 18,2m2 sérafnotaflöt með timburklæddri verönd að hluta.   Frágang við verönd er þannig háttað að á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að setja á hana svalalokun. 

* 1 stórt svefnherbergi með góðum fataskápum.  

* Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, ljósum flísum á gólfi, sturtu úr glerþili og fallegum og endingargóðum Grohe hreinlætisækjum.

* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu á snyrtilegan hátt.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er fallegt harðparket frá Álfaborg. 

* LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða

*  Við húsið er stór, sameiginleg,  lokuð hjóla- og vagnageymsla með epoxi á gólfi.   Sorpgerði á lóð. 

*  Rafhleðsla fyrir rafmagnsbíl.  Háhraða ljósleiðaratenging er í húsinu. 

*  Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. 

*  Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgeymslu að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.

Efnisval:

Íbúðin er með fallegum, sérsmíðuðum, ljósum innréttingum í bland við dökka viðaráferð frá Voké-III.  Allar innréttingar og fataskápar ná upp í loft !
Heimilistækin eru vönduð AEG tæki frá Rafha.
Flísar á baðherbergi eru ljósar ítalskar 60x60 Panaria Surround flísar, frá Álfaborg
Gólfefni: Slitsterkt BerryAlloc Cadenza harðparket, frá Álfaborg
Innihurðir eru stílhreinar, hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir Dana SAX frá Parki
Hreinlætistækin eru falleg og endingargóð tæki frá Grohe.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
S 483 3424

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er góður tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) og Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
2.4 m2
Fasteignanúmer
2535035
Byggingarefni
steypt

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0405
Hnjúkamói 14, íbúð 0405
815 Þorlákshöfn
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
660 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0305
Hnjúkamói 14, íbúð 0305
815 Þorlákshöfn
99.2 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0205
Hnjúkamói 14, íbúð 0205
815 Þorlákshöfn
97.4 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14, íbúð 0403
Hnjúkamói 14, íbúð 0403
815 Þorlákshöfn
53.7 m2
Fjölbýlishús
211
855 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin