BERG fasteignasala kynnir:
EIGN Í SÉRFLOKKI. - Mjög mikið endurnýjuð fimm herbergja björt og glæsileg 109,6 fm. íbúð á 3.ju hæð auk 23,1 fm. bílskúrs. Samtals er eignin skráð 132,7 fm. Fjögur góð svefnherbergi. Eignin er með nýlegum glæsilegum innréttingum. Stílhrein og óvenju falleg eign.
Nánari lýsing: Komið er í anddyri. Hol með opið í stofu og eldhús. Til hægri úr holi er rúmgott herbergi. Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum og nær einn þeirra og sá stærri niður að gólfi. Mikið útsýni er úr stofu til suðurs og vesturs. Útgengt á svalir sem snúa í suð-vestur. Eldhúsið er allt nýlega endurnýjað með flottri innréttingu og eldhústækjum. Nýlegt parket er á gólfum. Herbergisgangur með 3 svefnherberggjum með nýlegu parketi. Baðherbergið er allt nýlega endurnýjað með flottum flísum, sturtuklefa og hreinlætistækjum. Inn af baði er nett þvottahús.
Í sameign í kjallara er sér geymsla með hillum. Eigninni fylgir bílskúr, 23,1 fm. með nýlegri vinduhurð. Kalt vatn og ofn er í bílskúrnum. Umhverfis fjölbýlishúsið er stór garður og mikið opið svæði allt gróið með trjám og runnum. Flott staðsetning. Mjög miðsvæðis, Kringlan, Borgarleikhúsið og ýmis þjónusta í göngufjarlægð. Stutt í Grunnskóla.
Nánari upplýsingar hjá Berg fasteignasölu í síma 588-5530 eða eftirfarandi starfsmönnum:
Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali - sími 897-0047 - netfang: petur@berg.is
Brynjólfur Jónsson, löggiltur fasteignasali, 898-9791, netfang: brynjolfur@berg.is
Heimasíða Berg fasteignasölu: www.berg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.400,- m/vsk
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
28/01/2009 | 21.120.000 kr. | 1.500.000 kr. | 210.4 m2 | 7.129 kr. | Nei |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
108 | 116.4 | 82,5 | ||
108 | 126.6 | 75,9 | ||
108 | 110 | 79,5 | ||
108 | 158.9 | 79,9 | ||
108 | 130.3 | 76 |