Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með bílskúr í litlu, vel viðhöldnu 3ja hæða fjölbýlishúsi miðsvæðis í Garðabæ. Nýlega búið að yfirfara þak og endurnýja.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 131,9 fm og þar af er bílskúr 18,1 fm og geymsla 8,6 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með teppi og góðum fataskáp.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á mjög góðar suður svalir.
Borðstofa opin við stofu og eldhús og er rúmgóð með parket á gólfi.
Eldhús var nýlega endurnýjað með fallegri dökkri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda eitt gott rými.
Svefnherbergisgangur með nýtt parket á gólfi. Góður fataskápur á ganginum,
Hjónaherbergi er rúmgott með nýtt parket á gólfi og með nýlegan fataskáp.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi með nýrri innréttingu, baðkari með sturtu, tengi fyrir þvottavél og flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr er með rafmagni, hita og vatni. Sér bílastæði fyrir framan skúr.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign í kjallara (nýtt sem herbergi í dag).
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Sameiginlegt þurrkherbergi einnig í sameign í kjallara.
Góð eign miðsvæðis í Garðabæ og stutt í leik- og grunnskóla, íþróttir, verslanir og alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is