DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:13. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 8. júlí 2026

Sólbarð

HæðHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
129.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.500.000 kr.
Fermetraverð
730.294 kr./m2
Brunabótamat
57.250.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20816051
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: rúmgóða og bjarta 4 herbergja íbúð á 1. hæð að Sólbarði, 225 Álftanes. Sér inngangur og ca 48 fm pallur með saunu sunnan við húsið.

> Mikið endurnýjuð eign
> Stór eldhúsinnrétting
> Gott baðherbergi með fullorðins sturtu
> Stór pallur með saunu
> Sér inngangur
> Dulið rými 1,7 fm, sem hægt væri að bæta við nýtta fermetra


Nánari lýsing:
Sér inngangur.
Komið inn í anddyri með innréttingu og glugga
Gangur er rúmgóður og leiðir þig í herbergin á vinstri hönd, en þvottahús/geymslu og baðherbergi eru til hægri..
Eldhús: með rúmgóðri L-laga innréttingu.
Stofa og borðstofa: snýr að garði/palli til suðurs og er með svalahurð út á pallinn.
Baðherbergi: upphengt klósett, handlaug og innrétting ásamt stórum sturtuklefa. 
Hjónaherbergi: er með fataskápum og rennihurð, til að nýta rýmið betur.
Við hlið hjónaherbergis er opið hol, sem tilvalið er að nýta sem skrifstofu.
Barnaherbergin eru rúmgóð og björt með fataskáp. Gluggar í suður.
Húsið hefur einhvern tímann verið einbýli og þá var þörf fyrir stiga á milli hæða. Þessi stigi er ennþá og hægt væri að fá meira nýtanlegt rými með því að fjarlægja hann. Samkvæmt teikningu er þetta 1,7 fm.
Þvottahús og geymsla eru saman í rými. Epoxy á gólfi.
Pallurinn er ca 48 fm til suðurs með sauna tunnu.

Frávik frá teikningu: eldhúsið hefur verið flutt yfir í rými, þar sem áður var herbergi 10,8 fm. Herbergið sem áður var eldhús er nú nýtt sem barnaherbergi. Hjónaherbergi er merkt sem vinnuherbergi. Borðstofa er nú nýtt sem skrifstofa. Búið er að sameina fataherbergi og baðherbergi.

Tengt fyrir rafbíl.
Húsið er klætt með viðhaldslítilli klæðningu.
Lóðin er sameiginleg. Tvær íbúðir eru í húsinu og vegna hæðarmunar í landslagi virðist hvor eignin hafa beinan aðgang frá götu.
Báðar eignirnar hafa byggt pall fyrir sig.

Skv. eignaskiptayfirlýsingu er bílskúrsréttur til staðar en sækja þyrfti um leyfi hjá Garðabæ. 
Lóðin er 920 fm eignarlóð
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð á hæð merkt 01-01-01, birt stærð er 129,4 fm. Byggt 1947. 

Stutt í þjónustu: skóla, sundlaug & golfvöll.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Bæjarfasteignir ehf
www.fasteignasalan.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langalína 14
Bílastæði
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Langalína 14
Langalína 14
210 Garðabær
137.9 m2
Fjölbýlishús
413
920 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Hrafnaborg 3
190 Vogar
111.7 m2
Fjölbýlishús
413
653 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 25
Bílastæði
Skoða eignina Baughamar 25
Baughamar 25
221 Hafnarfjörður
114 m2
Fjölbýlishús
413
675 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 25
Skoða eignina Baughamar 25
Baughamar 25
221 Hafnarfjörður
107 m2
Fjölbýlishús
413
710 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin