Miklaborg kynnir til sölu 26,3 fm geymslu-/bílskúrsbil merkt 17B við Móhellu 4B í Hafnarfirði. Eignin er laus til afhendingar strax.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Um er að ræða 26,3 fm lokað geymslu- og bílskúrsbil sem hentar vel fyrir einstaklinga eða fyrirtæki sem þurfa á góðu geymslurými að halda, t.d. fyrir bifreið, lager, búnað eða aðra geymslu.
Rafmagn og hiti eru í bilinu. Aðkoma að svæðinu er um öryggishlið og á svæðinu er jafnframt sameiginleg salernisaðstaða.
ATH. Möguleiki á stærra rými: Seljandi er jafnframt eigandi að aðliggjandi bili, nr. 16B, sem er 26,3 fm að stærð. Seljandi er opinn fyrir sölu á báðum bilunum saman. Mögulegt er að opna á milli bilanna og sameina þau í eitt 52,6 fm rými. Bil 16B er ekki auglýst sérstaklega til sölu.
Hentug eign á góðum stað fyrir þá sem leita að öruggu og aðgengilegu geymslu- eða bílskúrsrými í Hafnarfirði.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 20/11/2023 | 6.820.000 kr. | 8.750.000 kr. | 26.3 m2 | 332.699 kr. | Já |
| 25/03/2020 | 5.700.000 kr. | 7.500.000 kr. | 26.3 m2 | 285.171 kr. | Já |
| 04/10/2006 | 2.030.000 kr. | 2.450.000 kr. | 26.3 m2 | 93.155 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 26,3 | 11,5 | ||
221 | 170,7 | 59,9 | ||
221 | 77 | 34,9 | ||
221 | 146,7 | 44,9 | ||
221 | 77 | 34,9 | ||
220 | 478,3 | 279,8 |