Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2025
Deila eign
Deila

Skarðshlíð 26 D

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
82.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
47.900.000 kr.
Fermetraverð
582.725 kr./m2
Fasteignamat
36.700.000 kr.
Brunabótamat
43.500.000 kr.
Byggt 1972
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2150329
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Raflagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Frárennslislagnir
Talið í lagi - ekki skoðað
Gluggar / Gler
Komin er móða á milli glerja í nokkrum gluggum
Þak
Talið í lagi - ekki skoðað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já - Suður
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kasa fasteignir 461-2010.

Skarðshlíð 26 D - Mikið endurnýjuð 4 herbergja 82,2 fm íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi á góðum stað í Þorpinu. 
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými ásamt sér geymslu í sameign.

Svefnherbergin eru þrjú, öll með flísum á gólfi. Í hjónaherbergi er stór skápur án hurða með rúmgóðum hillum, skúffum og upphengi.
Á gangi fyrir framan hjónaherbergi er góður skápur með rennihurðum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er ljós innrétting með tveimur vöskum, upphengt salerni, sturta með sturtugleri og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Í eldhúsi er góð innrétting með stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými, en úr stofu er gengið út á svalir til suðurs.
Sér geymsla er í kjallara, hún er ekki skráð í fermetra eignarinnar.

Flísar sömu gerðar eru á allri íbúðinni og rennihurðar eru inn í herbergi og baðherbergi.

-Íbúðin var endurnýjuð að miklu leyti árið 2011.
-Innrétting í eldhúsi og rennihurðar eru smíðaðar og settar upp af SSbyggir.
-Húsið var málað að utan sumarið 2025.
-Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara. 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/12/202124.250.000 kr.29.500.000 kr.82.2 m2358.880 kr.
23/07/201817.800.000 kr.26.500.000 kr.82.2 m2322.384 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Kasa Fasteignir
http://www.kasafasteignir.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skarðshlíð 15 c
Skarðshlíð 15 c
603 Akureyri
95 m2
Fjölbýlishús
312
515 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnuhlíð 21
Skoða eignina Sunnuhlíð 21
Sunnuhlíð 21
603 Akureyri
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
530 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Borgarhlíð 7d
Skoða eignina Borgarhlíð 7d
Borgarhlíð 7d
603 Akureyri
75.6 m2
Fjölbýlishús
312
634 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Lindasíða 4
Skoða eignina Lindasíða 4
Lindasíða 4
603 Akureyri
67.7 m2
Fjölbýlishús
211
737 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin