DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:01. júní kl 12:15-12:45
Skráð 28. maí 2026

Lækjasmári 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
113 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.800.000 kr.
Fermetraverð
750.442 kr./m2
Fasteignamat
82.150.000 kr.
Brunabótamat
59.100.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2239855
Landnúmer
115543
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler/upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags. Á aðalfundi 2025 var samþykkt að fela stjórn að afla tilboða og láta framkvæma viðgerð á svalaloftum nokkurra íbúða,viðgerð á svalahandriðum á tveim/þrem íbúðum,málningu utandyra á jarðhæð/innkeyrslu í bílakjallara,endurnýjun geymslustæða fyrir reiðhjól ,viðgerð vegna skemmda á málingu á vegg við brunastiga á 2.hæð, endurnýjun á sameiginlegri lýsingu á bílastæðum og merkja bílastæði í bílakjallara. Einnig var samþykkt samhljóða að innheimta allt að 2.000.000 kr. vegna hreinsunar á loftræstingu. Stjórn tók að sér að vera í sambandi við pípara varðandi að fá úttekt á pípulögnum í hitakompu. Stjórn mun einnig taka að sér að finna lausn á lekum glugga á vestur hlið á samt öðrum minni verkefnum. Sjá nánar aðalfundargerð 12.03.2025 Á aðalfundi 2026 var upplýst um að farið verði í framkvæmdir á handriðum á svölum og ryðvörn á þakköntum og á bíslagi sem samþykkt var á aðalfundi 2025, á komandi sumri. Samþykkt var að mála bílastæðin og fara í árlegan gluggaþvott. Sjá aðalfundargerð 04.02.2026.


 
Falleg og björt 113,3 fm 4ra herbergja (Tvö svefnh. í dag) herbergja íbúð á 2. hæð í álklæddu lyftuhúsi. Yfirbyggðar svalir að hluta með útsýni, ragmagnsofn og viðar flísar á svalargólfi. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar eru í eldhúsi, svefnherbergjum og baðherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Fallegir göngu- og hjólastígar um hverfið og stutt í alla helstu þjónustu. Árið 2015 veitti  umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs Húsfélaginu Lækjasmára 8 viðurkenningu fyrir umhirðu húss og lóðar. 

* Eignin er skráð 4ra herbergja. Tvö svefnherbergi í dag en tækifæri að fjölga herbergjum í þrjú
* Falleg íbúð með útsýni, eign sem vert er að skoða.
* Yfirbyggðar svalir,viðar  flísar á svalargólfi.
* Hleðslustöðvar fyrir rafbíla á bílastæði húsins.
* Fallegir göngu- og hjólastígar um hverfið.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 / palli@palssonfasteignasala.is
Sara Wium Hermannsdóttir astmf. í S: 891-6193 eða sara@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

A.T.H: búið er að setja inn húsgögn með A.I
Eignin skiptist: anddyri/gangur, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús og stofa.

Nánari lýsing:
Anddyri/gangur: parketlagt með fataskápum.
Þvottahús: Er innan íbúðar og með flísum á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt með fallegri innréttingu efri og neðri skápar með handlaug, salerni og góðum sturtuklefa.
Hjónaherbergi: parket á gólfi og með rúmgóðum skápum.
Herbergi 2:  rúmgott með parketi á gólfi og skápum. 
Eldhús: parketlagt, snyrtileg innrétting og góður borðkrókur við glugga. 
Stofa/ borðstofa: Stór, björt og falleg stofa/ borðstofa með parket á gólfi, úr stofu er gengið út á yfirbyggðar suðaustursvalir sem eru að hluta til með viðar flísum og rafmagnsofni og þaðan út á svalir, fallegt útsýni.
Geymsla: sér geymsla innan sameignar. 
Sameign: mjög snyrtileg og falleg sameign. Góð hjóla og vagnageymsla.
Lóð: mjög snyrtileg og falleg lóð, nóg af bílastæðum. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla á bílastæðum hússins.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 103,9 fm og sér geymsla í kjallara 9,4 fm, samtals 113,3 fm skv. HMS. 
Smkv. teikningum er íbúðin með 3 svefnherbergjum en þau eru 2 herbergin, möguleiki á að bæta við herbergi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 206
Jöfursbás 3B íb 206
112 Reykjavík
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
963 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 205
Jöfursbás 3B íb 205
112 Reykjavík
90.2 m2
Fjölbýlishús
312
941 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 307 HLUTDLÁN
Jöfursbás 3B íb 307 HLUTDLÁN
112 Reykjavík
60.1 m2
Fjölbýlishús
111
997 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 204 HLUTDEILDARLÁN
Jöfursbás 3B íb 204 HLUTDEILDARLÁN
112 Reykjavík
57.7 m2
Fjölbýlishús
212
997 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin