RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, ásamt stæði í bílageymslu, í vönduðu fjölbýlishúsi við Skipalón 5 miðsvæðis í Hafnarfirði. Stutt í skóla, leikskóla, verslun og aðra þjónustu. Húsið hefur hlotið viðurkenningu frá Hafnarfjarðarbæ fyrir fallegan bakgarð og aðkomu að húsinu sem er til fyrirmyndar.
- 3D linkur hér - (með og án húsgagna)
- Bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð
- Stórt hellulagt útisvæði sem snýr í suðvesturátt
- Sérinngangur
- Raflagnir (kveikjarar endurnýjaðir með Livolo efni fyrir nokkrum árum)
Nánari lýsing: Stofa og borðstofa er með parketi á gólfi. Frá stofu er gengið út á afgirtan suðvestur hellulögðu svæði. Hann er jafnframt sérafnotareitur íbúðarinnar og sérlegar rúmgóður miðað við fjölbýli.
Eldhúsið er opið inn í stofu og með parketi á gólfi. Falleg innrétting úr eik með góðu skápaplássi. Granít borðplata með undirlímdum vaski. Stæði fyrir uppvöskunarvél.
Hjónaherbergið er með góðum tvöföldum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er annað rúmgott barnaherbergi við hlið anddyris. Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir. Baðkar er með sturtuaðstöðu og vegghengdu salerni. Á baði er einnig innréttingu og handklæðaofn.
Þvottaherbergið er við hliðina á baðherberginu. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Þvottahúsið er með flísalögðu gólfi og skolvaski.
Anddyri er opið og flísalagt með skápum.
Geymsla á jarðhæð í sameign er 7,3 m². Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.
Stutt í skóla, leikskóla, verslun og aðra þjónustu, útivistarsvæði og golfvöllinn Keili. Húsið hefur hlotið viðurkenningu frá Hafnarfjarðarbæ fyrir fallegan bakgarð og aðkomu að húsinu sem er til fyrirmyndar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.isVegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.