ATH til eru teiknignar með tveimur herbergjum, svo íbúðin getur verið þriggja herbergja.
Aukin lofthæð - Innfelld lýsing - Óbein lýsing meðfram lofti í alrými - Stórar sameiginlegar þaksvalir - Bílastæði og inngangar á suður, vestur og norður hlið hússins - Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu
Sérsmíðaðar fallegar innréttingar
Íbúðin skiptist í forstofu/gang, baðherbergi, svefnherbergi ásamt eldhúsi og stofu í samliggjandi rými með útgengi út á suður svalir.Nánari lýsing: Harðparket á gólfum að undanskildu baðherbergi en þar eru flísar.
Forstofa: Rúmgóður fataskápur.
Baðherbergi: Mjög rúmgott. Flísalagt í hólf og gólf, flisar frá Álfaborg. Innréttingar með mattri viðarklæðningu, speglaskápar á vegg fyrir ofan vask. Skápur með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, klæddur með mattri viðarklæðningu. Walk in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með mjög góðum fataskápum.
Stofa: Bjart og rúmgott rými með mikilli lofthæð. Loftin eru með innbyggðri lýsingu ásamt óbeinni lýsingu meðfram lofti. Útgengt út á góðar suðursvalir.
Eldhús: Opið og skemmtilegt rými samliggjandi stofunni, innréttingin er vönduð og er frá Voke. Efri skápar sprautulakkaðir neðri skápar með mattri viðarklæðningu, brautir og lamir með ljúflokun. AEG blástursofn, spanhelluborð ásamt gufugleypi.
Geymsla: 3,6 fm geymsla staðsett í sameign hússins.
Hjóla og vagnageymsla: Staðsett í sameign.
Mikið hefur verið lagt í hönnun hússins jafnt að utan sem innan. Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá Formus / Voke en allar innréttingar og lýsingar eru hannaðar af innanhúsarkitektinum Hallgrími Friðgeirssyni innanhúsarkitekt. Aðalhönnuður hússins er Jakob Líndal á Alark arkitektar.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.