DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 10. feb. 2026

Kirkjubraut 2

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
156.6 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
478.289 kr./m2
Fasteignamat
60.750.000 kr.
Brunabótamat
67.700.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2102072
Landnúmer
132120
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 156,6 fermetra íbúð á 4. hæð (öll 4. hæðin) í nýlega viðgerðu og endurnýjuðu fjölbýlishúsi á frábærum stað við Kirkjubraut á Akranesi. Um er að ræða eitt fastanúmer, sem innréttað er sem tvær íbúðir og hafa þær sameiginleg afnot af suðursvölum á hæðinni.

Rýmið sem um ræðir er innréttað sem tvær íbúðir og hefur þegar verið teiknað sem slíkt.  Verið er að sækja um samþykki fyrir því að skrá rýmið með tvö fastanúmer.

Annars vegar er um að ræða 4ra herbergja íbúð, sem er um 100,0 fermetrar að stærð og skiptis í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og eldhús og stofu í einu rými.
Hins vegar er um að ræða 2ja herbergja íbúð, sem er um 56,6 fermetrar að stærð og skiptist í forstofu, stórt hol, svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og stofu og eldhús í einu rými.

Íbúðirnar eru báðar mikið endurnýjaðar á sl. mánuðum:
Stærri íbúðin: neysluvatnslagnir, klóaklagnir innan hússins, raflagnir og rafmagnstafla, gólfefni (harðparket), eldhúsinnrétting og tæki og baðherbergi. Gler og gluggar hafa verið endurnýjaðir í íbúðinni.
Minni íbúðin: neysluvatnslagnir, klóaklagnir innan hússins, raflagnir og rafmagnstafla, gólfefni, eldhúsinnrétting og tæki og baðherbergi. Gler og gluggar íbúðarinnar verða endurnýjuð á næstu vikum á kostnað seljanda.


Lýsing stærri íbúðarinnar, sem er 4ra herbergja og um 100,0 fermetrar að stærð:
Forstofa, parketlögð og fataskápar.
Hol, parketlagt.
Barnaherbergi I, parketlagt og fataskápar.
Barnaherbergi II, parketlagt og fataskápar.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc.,nýr sturtuklefi með vönduðum botni og góð innrétting með speglaskápum. 
Hjónaherbergi, parketlagt og með fataskápum og snyrtiborði.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með frábæru útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegum nýjum hvítum innréttingum og tækjum. Eyja í eldhúsi með áfastri borðaðstöðu og góðu skápaplássi. Frábært útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar.

Lýsing minni íbúðarinnar, sem er 2ja herbergja og er um 56,6 fermetrar að stærð:
Forstofa, parketlögð og með fataskápum. 
Hol, mjög stórt parketlagt og mögulegt að hafa vinnuaðstöðu eða svefnkrók.
Svefnherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., nýr sturtuklefi og innrétting.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með frábæru útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með nýjum hvítum eldhúsinnréttingum og tækjum auk borðaðstöðu. Mjög fallegt útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar.

Á hæðinni eru sameiginlegar skjólsælar og rúmgóðar svalir til suðurs fyrir þessar tvær íbúðir.

Í kjallara er 7,0 fermetra sérgeymsla, sem er sameiginleg fyrir báðar íbúðir.

Húsið að utan er í nokkuð góðu ástandi og hefur verið þó nokkuð endurnýjað og viðgert að utan. Sjá nánari í yfirlýsingu húsfélags sem er fyrirliggjandi á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. 

Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi bílastæða í kringum eignina.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í miðbæ Akraness, við Akratorg, og frá eigninni nýtur virkilega fallegs útsýnis.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langimói 5 íbúð 102
Langimói 5 íbúð 102
603 Akureyri
51.4 m2
Fjölbýlishús
211
944 þ.kr./m2
48.500.000 kr.
Skoða eignina Úlfarsbraut 98
Bílastæði
Skoða eignina Úlfarsbraut 98
Úlfarsbraut 98
113 Reykjavík
132.1 m2
Fjölbýlishús
413
756 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Fossvogsvegur 8
108 Reykjavík
210.8 m2
Fjölbýlishús
524
1139 þ.kr./m2
240.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 32
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 32
Fossvogsvegur 32
108 Reykjavík
189.1 m2
Fjölbýlishús
524
1163 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin