DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 2. apríl 2025

Sóleyjarimi 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
141.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
107.900.000 kr.
Fermetraverð
762.544 kr./m2
Fasteignamat
96.500.000 kr.
Brunabótamat
73.200.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2354046
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
í lagi
Raflagnir
í lagi
Frárennslislagnir
í lagi
Gluggar / Gler
í lagi
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Einstaklega falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum og sér þvottahúsi á jarðhæð með sérinngangi í rólegum botnlanga í Sóleyjarima í Grafarvogi. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði beint fyrir framan húsið. Um er að ræða vandað og sérlega fallegt fjölbýlishús á tveimur hæðum þar sem allar eignir eru með sér inngang. Eignin skiptist í rúmgóða forstofu, 60 m2 alrými með eldhúsi, stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu, tvö stór svefnherbergi, tvö baðherbergi með sturtu, fataherbergi, rúmgott þvottaherbergi og sér geymslu í sameign. Í eigninni er gólfhiti í öllum rýmum og allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Útgengt úr íbúðinni bæði að framan á steyptan sérafnotareit sem snýr í suðvestur og einni að aftan út í sameiginlegan garð þar sem einnig er sérafnotareitur sem fylgir íbúðinni. Á bílastæðinu fyrir framan húsið er búið að setja upp hleðslustöðar fyrir rafmagnsbíla sem íbúðar geta nýtt sér. Húsið var allt málað að utan í sumar. 
Eign í sérflokki.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 
Nánari lýsing eignar:

Einkabílastæði er beint fyrir framan íbúðina og gengið er að íbúðinni beint af jarðhæð. Fyrir framan íbúðina er skjólgóður sérafnotareitur sem snýr í suðvestur.
Forstofa: komið er inn í forstofu með fallegum ljósum 60 x 60 cm flísum á gólfi og fimmföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft og veggja á milli.
Baðherbergi nr.1: Inn af forstofunni er rúmgott baðherbergi með fallegum sandgráum 60 x 60 cm flísum á gólfi og á tvo veggi í votrýmum. Stór sturta með glervegg er á baðherberginu beint á gólf. Innrétting undir vaski er hvít með dökkri granít borðplötu. Fyrir ofan vask er stór spegill og hulin lýsing. Handklæðaofn er á vegg.
Alrými: Eldhús, sjónvarpsstofa, borðstofa og setustofa
Eldhús:
Eldhúsið er sérlega skemmtilega hannað. Góð innrétting með miklu skápaplássi er felld inn í einn vegg og stór eyja á móti. Innréttingin er sérlega skemmtileg þar sem vaskur og vinnuborð er fellt inn í innréttinguna og góðir skápar og skúffur þar í kring sem ná upp í loft. Eyjan er einnig með mjög góðu vinnuplássi ásamt eldunaraðstöðu með gufugleypi fyrir ofan úr lofti. Granít steinn er á borðum. Eldhúsið er í opnu rými með stofunni.
Sjónvarpsstofa, borðstofa og setustofa: Stofan er sérlega rúmgóð og rúmar vel setustofu, borðstofu og sjónvarpsstofu. Fallegt harðparket er á gólfi og innfeld lýsing er í loftum. Útgengt er út á suðvestur sérafnotareit frá stofunni.
Hjónasvíta: Hjónaherbergi, baðherbergi, fataherbergi
Hjónaherbergi:
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með fallegu harðparketi á gólfi og fallegum gluggum sem snúa að bakgarði hússins.
Baðherbergi nr.2: Baðherbergi er inn af hjónaherberginu. Fallegar 60 x 60 cm sandgráar flísar eru á gólfi og á tveimur veggjum hjá votrýmum. Stór sturta er beint á gólf með glervegg. Góð hvít innrétting er undir vaski með dökkri granít borðplötu og stórum spegil á vegg fyrir ofan vask. Handklæðaofn er á vegg. Rennihurð skilur á milli baðherbergis og hjónaherbergis.
Fataherbergi: Inn af hjónaherberginu er einnig fataherbergi með opnanlegum glugga og innréttingu sem nær upp í loft með góðum hillum, skúffum og hengi. Rennihurð skilur á milli hjónaherbergis og fataherbergis.
Barnaherbergi: Mjög stór auka herbergi er í íbúðinni með fallegu harðparket á gólfi og tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft. Útgengt er frá herberginu út í garðinn á bak við húsið. Herbergið er 14,7 m2
Þvottaherbergi: Rúmgott tæplega 7 m2 þvottaherbergi er innan íbúðar með fallegum flísum á gólfi og góðri hvítri innréttingu sem nær upp í loft. Í innréttingunni er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með bæði skúffum og skápum fyrir ofan og neðan. Einnig er vinnuvaskur og vinnuborð.
Geymsla: Íbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign sem skráð er 7,9 m2.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign er rúmgóð hjóla- og vagnageymsla sem sameiginleg er fyrir allar íbúðir hússins.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/01/201746.150.000 kr.49.900.000 kr.141.5 m2352.650 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 62
Opið hús:22. mars kl 16:00-16:30
Skoða eignina Kleppsvegur 62
Kleppsvegur 62
104 Reykjavík
63 m2
Fjölbýlishús
111
921 þ.kr./m2
58.000.000 kr.
Skoða eignina Gylfaflöt 22
Til leigu
Skoða eignina Gylfaflöt 22
Gylfaflöt 22
112 Reykjavík
90 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 68.800.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Holtsvegur 10
Skoða eignina Holtsvegur 10
Holtsvegur 10
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Berjarimi 26
Opið hús:23. mars kl 18:15-18:45
Skoða eignina Berjarimi 26
Berjarimi 26
112 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
805 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin